Sjóvá skilaði 811 milljóna hagnaði í fyrra 10. maí 2011 11:40
Sjóvá skilaði 811 milljóna króna hagnaði á árinu 2010. Arðsemi eigin fjár var rúm 6,8% á tímabilinu. Eigið fé Sjóvár nam 12,3 milljörðum króna í lok árs og var eiginfjárhlutfallið 33,6%. Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. Þar segir að heildartekjur félagsins á árinu námu 12,3 milljörðum, þar af voru iðgjöld 10,9 milljarðar og afkoma af fjármagnsliðum 1,3 milljarðar. Sjóvá var í söluferli á árinu 2010 sem lauk án niðurstöðu um sölu á tryggingafélaginu. Engu að síður leiddu viðræður á síðari stigum til aðkomu fjárfestingahóps sem keypti 51.4 % hlutafjár. Fyrirhuguð kaup bíða nú samþykktar FME. Stjórn Sjóvár telur afkomu rekstrarins viðunandi miðað við núverandi aðstæður. Félagið stendur traustum fótum og horfur í rekstri eru góðar. Framundan eru spennandi verkefni á sviði fjölbreyttrar þjónustu við fjölskyldur og fyrirtæki sem velja Sjóvá sem sinn bakhjarl í tryggingamálum. Stjórn Sjóvár er þakklát fyrir það traust sem viðskiptavinir sýna félaginu, að því er segir í tilkynningunni. Stjórn Sjóvá var endurkjörin á aðalfundi félagsins nýlega. Hana skipa Frosti Bergsson stjórnarformaður, Haukur C. Benediktsson varformaður, Erna Gísladóttir, Heimir V. Hannesson og Þórhildur Helgadóttir.
Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Sjá meira