Klaus Frimor bætir við flugukastnámskeiðum 29. júlí 2011 14:23
Klaus Frimor bætir við nokkrum flugukastnámskeiðum á Rauðavatni í ágúst. Það komust færri að en vildu á námskeiðin í vor og nú bætir hann við einhendunámskeiðum 18 og 20 ágúst og tvíhendunámskeiði 19 ágúst. Þetta er frábært tækifæri til að ná köstunum góðum fyrir veiðina í sumar og læra frá grunni réttu handtökin við köstin. Klaus mun fara í yfirhandar köstin og undirhandarköstin með tvíhendu og einhendu, einnig er farið yfir allan búnaðinn og mælt hvort línurnar passi við stangirnar svo að sem bestur árangur náist í veiðinni. Námskeiðin kosta 9.000 fyrir mannin og það verður takmarkaður fjöldi á hvert námskeið. námskeiðin verða eftirfarandi. Fimmtudagurinn 18 ágúst kl 18.00 við Rauðavatn, Einhendunámskeið. Föstudagurinn 19 ágúst kl. 18.00 við Rauðavatn, Tvíhendunámskeið. Laugardagurinn 20 ágúst kl 11.00 við Rauðavatn, Einhendunámskeið. Það er hægt að skrá sig á námskeiðin hjá Veiðiflugum í síma 5271060 eða á hilmar@veidiflugur.is Sjá nánar hér: https://veidiflugur.is/is/vorur/flokkur/kastnamskeid
Stangveiði Mest lesið 103 sm lax úr Ytri Rangá Veiði 10 laxar í Grímsá fyrsta daginn Veiði Miðá í Dölum til SVFR Veiði Lokatölur úr flestum ánum komnar í hús Veiði Íslensku hrosshárin slógu í gegn Veiði Af stórlöxum í Nesi Veiði Mjög góð bleikjuveiði í Ásgarði Veiði Ennþá fullt af laxi í Urriðafossi Veiði Nýr söluaðili veiðileyfa í Eystri Rangá Veiði Góður frágangur fer betur með búnaðinn Veiði