Breivik leiddur fyrir dómara í Osló 19. september 2011 12:10 Breivik kemur í dómsalinn mynd/afp
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var leiddur fyrir dómara í Ósló í morgun en þar verður farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds hans. Hinn 32 ára gamli Breivik kom fyrir dómara nú klukkan ellefu í morgun að íslenskum tíma, en þar mun saksóknari fara fram á átta vikna framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir honum. Jafnframt er talið að hann krefjist þess að Breivik verði gert að sæta fjögurrra vikna einangrun, en samkvæmt norskum lögum er ekki hægt að leggja fram beiðni um lengri einangrunarvist og því hefur krafan verið lögð fram á fjögurra vikna fresti. Um lokað réttarhald er að ræða, en það var norska lögreglan sem fór fram á að þessi háttur yrði hafður á þar sem hún óttaðist að Breivik myndi nota tækifærið til að koma skilaboðum áleiðis til mögulegra vitorðsmanna. Dómari kveður upp úrskurð sinn klukkan hálfeitt að íslenskum tíma í dag og að því loknu verður haldinn blaðamannafundur sem sýndur verður í beinni útsendingu á vef norska ríkisútvarpsins. Breivik er sakaður um að bera ábyrgð á sprengjuárásinni í miðborg Oslóar og fjöldamorðunum í Útey sem urðu 77 manns að bana þann 22.júlí síðastliðinn.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira