Messi skoraði þrennu á sautján mínútum - 5-0 sigur Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2011 18:35 Messi fagnar einu marka sinna í dag. Nordic Photos / AFP
Barcelona vann í kvöld auðveldan 5-0 sigur á Real Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni en Lionel Messi gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á aðeins sautján mínútum í fyrri hálfleik. Barcelona er enn taplaust á leiktíðinni en hefur gert þrjú jafntefli. Messi hefur skorað nú þrettán mörk í tíu leikjum á leiktíðinni en var engu að síður nokkuð gagnrýndur fyrir að skora ekkert í síðustu þremur leikjum Barcelona, bæði í spænsku úrvalsdeildinni sem og Meistaradeild Evrópu. Messi hefur nú svarað þeim gagnrýnisröddum með þremur mörkum. Það fyrsta skoraði hann úr vítaspyrnu eftir að Nsue var dæmtur brotlegur fyrir að handleika knöttinn í eigin vítateig. Það mark kom á 13. mínútu og átta mínútum síðar var hann búinn að skora aftur. Isaac Cuenca gaf boltann fyrir markið og skoraði Messi af stuttu færi. Hann fullkomnaði svo þrennuna með marki eftir fyrirgjöf Dani Alves. Cuenca var að spila sinn annan leik með aðalliði Barcelona og hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í seinni hálfleik með föstu skoti. Dani Alves gat ekki verið minni maður og skoraði fimmta mark Börsunga með neglu í uppbótartíma. Barcelona kom sér á topp deildarinnar með sigrinum en liðið er með 24 stig að loknum tíu leikjum. Levante og Real Madrid eiga þó bæði leik til góða og geta komið sér upp fyrir Barcelona sigri þau sína leiki.
Spænski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira