Fótbolti

Barcelona skoraði níu gegn L'Hospitalet

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tello og Cuenca fagna í kvöld.
Tello og Cuenca fagna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Stórlið Barcelona sýndi klærnar gegn neðrideildarliðinu L'Hospitalet með 9-0 sigri í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Fyrri leik liðanna lauk reyndar „bara" með 1-0 sigri Spánarmeistaranna en þeir sýndu gríðarlega yfirburði á heimavelli sínum, Camp Nou, í kvöld.

Thiago Alcantara, Isaac Cuenca og Cristian Tello skoruðu tvö mörk hver í leiknum og þeir Pedro, Andres Iniesta og Xavi eitt hver.

Dregið verður í 16-liða úrslitin á morgun en þeir leikir fara allir fram í fyrri hluta janúarmánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×