Níutíu framtíðarstörf í kísilveri í Helguvík Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. febrúar 2011 11:00 Bráðið ál.
Iðnaður Fjörutíu þúsund tonna kísilmálmverksmiðja rís í Helguvík samkvæmt samningum sem skrifað var undir í gær. Gengið var frá fjárfestingarsamningum milli stjórnvalda, Reykjanesbæjar og Íslenska kísilfélagsins ehf. Jafnframt hefur verið kláraður orkusamningur við HS Orku og Landsvirkjun, hafnarsamningur við Reykjaneshöfn og viljayfirlýsing um orkuflutning við Landsnet. Íslenska kísilfélagið, sem er í meirihlutaeigu bandaríska fyrirtækisins Globe Speciality Metals, kaupir 35 megavött* af orku frá Landsvirkjun og 30 megavött frá HS Orku. Þar með er mætt 65 megavatta jafnaðarorkuþörf verksmiðjunnar, en hún þarf 550 gígavött af raforku til starfsemi sinnar. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan verði tekin í notkun um mitt ár 2013, en framkvæmdir eiga að hefjast snemmsumars í ár, að því er fram kemur hjá Íslandsstofu. Í byrjun þessa árs rann starfsemi Fjárfestingastofu inn í Íslandsstofu, sem er samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs. Reisa á verksmiðjuhús á 20 mánuðum og eru um 300 ársverk áætluð á framkvæmdatíma. Gert er ráð fyrir að um 90 manns fái vinnu við verksmiðjuna; sérfræðingar, iðnaðarmenn og ófaglærðir. Heildarfjárfesting í verkefninu er sögð nema 110 milljónum evra, eða sem svarar rúmum 17 milljörðum króna. Í samningunum er gert ráð fyrir að Landsvirkjun sinni allri raforkuþörf verksmiðjunnar frá ársbyrjun 2016, en í tilkynningu Landsvirkjunar er haft eftir Herði Arnarsyni forstjóra að samningurinn marki tímamót. Fyrirtækið hafi stefnt að því að auka fjölbreytileika á meðal orkukaupenda og samningurinn beri því vitni. „Um er að ræða nýja iðngrein, magn sem hæfir orkuframboði nú um stundir og iðnað sem greiðir hærra verð en fyrir þekkist á íslenska markaðnum," segir hann og kveður mat Landsvirkjunar að áhugaverða vaxtarmöguleika sé að finna í tengdri og afleiddri starfsemi, svo sem hreinsun á kísilmálmi. Globe Speciality Metals er einn stærsti framleiðandi kísilmálms og sérhæfðs kísilblendis í heimi og fer með 85 prósenta hlut í Kísilfélaginu. Fimmtán prósent verða áfram í eigu Tomahawk Development á Íslandi, sem í fjögur ár hefur unnið að verkefninu. Íslenska kísilfélaginu var veitt starfsleyfi árið 2009 á grundvelli umhverfismats frá árinu áður.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira