Leyniskýrsla Seðlabankans: Staðan ekki betri í áratugi 16. febrúar 2011 12:20
Það sem kölluð hefur verið leyniskýrsla Seðlabankans á Alþingi sýnir að erlend skuldastaða þjóðarbúsins hefur ekki verið betri í áratugi. Þetta gengur þvert á það sem Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar gaf í skyn í ræðustól á Alþingi í gærdag. Skýrslan sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans er höfundarmerkt grein í ritröðinni Efnahagsmál eftir 8 hagfræðinga sem flestir starfa í Seðlabankanum. Niðurstöðurnar eru í meginatriðum þær að hin dulda staða þjóðarbúsins verði að líkindum betri, þegar öll kurl koma til grafar, en hún hefur verið í áratugi, eða sem nemur fjórðungi af landsframleiðslu. Hrein staða við útlönd sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, þ.e. undirliggjandi staða miðað við reiknað uppgjör úr þrotabúunum en án Actavis er metin á 23% af landsframleiðslu árið 2010, 18% árið 2011, 14% árið 2012 og 12% árið 2013. Ástæða þess að Actavis er tekið út úr jöfnunni er einfaldlega sú að fyrirtækið er komið nær alfarið í eigu Deutsche Bank eins og fram kom í fréttum á síðasta ári. Þar detta því út um 800 milljarðar kr. af erlendum skuldum þjóðarbúsins. Á móti kemur að erlendar eignir Actavis detta einnig út. Ekki er gott að spá i hve miklar þær eru. Hinsvegar kom fram í fréttum miðla á borð við Reuters og Bloomberg í fyrra að markaðsvirði Actavis gæti verið um 3,5 milljarðar evra eða um 550 milljarðar kr. Nettóstaðan ætti því að batna um 250 milljarða kr. eða um 15% af landsframleiðslu.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira