Kísilverið í Helguvík skapar 300 ársverk 17. febrúar 2011 13:26
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjist í byrjun sumars. Verksmiðjuhús munu rísa á 20 mánuðum og eru um 300 ársverk áætluð á framkvæmdatíma. Fjárfestingarsamningar milli stjórnvalda, Reykjanesbæjar og Íslenska kísilfélagsins ehf., voru undirritaðir í dag. Einnig var gengið frá orkusamningi við HS Orku, hafnarsamningi við Reykjaneshöfn og viljayfirlýsingu um orkuflutninga við Landsnet. Þetta kemur fram í tilkynningu um málið. Þar segir að loks var tilkynnt í dag um samninga á milli Landsvirkjunar og Kísilfélagsins um sölu á orku til kísilversins. Um er að ræða framleiðslu á 40 þúsund tonnum af hrákísli. Kísilverið þarf 550 GWa af raforku til starfsemi sinnar eða sem svarar til 65 MW að jafnaði. Bandaríska fyrirtækið Globe Speciality Metals, einn stærsti framleiðandi í heimi af kísilmálmi og sérhæfðu kísilblendi, hefur ákveðið að fjárfesta í verkefninu og mun ráða yfir 85 % hluta í Kísilfélaginu, en 15 % verða áfram í eigu Tomahawk Development á Íslandi ehf. Síðastnefnda félagið hefur undanfarin fjögur ár stefnt að því að reisa kísilver í Helguvík. Íslenska kísilfélaginu var veitt starfsleyfi á árinu 2009 á grundvelli umhverfismats sem lokið var 2008. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjist í byrjun sumars. Verksmiðjuhús munu rísa á 20 mánuðum og eru um 300 ársverk áætluð á framkvæmdatíma. Miðað er við að starfræksla kísilversins hefjist um mitt ár 2013. Um 90 manns fá vinnu við verksmiðjuna til frambúðar og er þar um að ræða sérfræðinga af ýmsu tagi, iðnaðarmenn og ófaglærða. Heildarfjárfesting í verkefninu nemur 110 milljónir evra eða jafnvirði rúmlega 17 milljarða íslenskra króna. Verkefnið er fullfjármagnað án ríkisaðastoðar að þeim ívilnunum frátöldum sem veittar eru með fjárfestingarsamningum við íslenska ríkið og Reykjanesbæ. Globe Speciality Metals Inc. er bandarískt fyrirtæki sem skráð er í NASDAQ kauphöllinni. GSM framleiðir kísilmálma og kísilmálmblöndur í margvíslega iðnaðarstarfsemi. Fyrirtækið starfrækir fimm kísilver og kísilblendiver í Bandaríkjunum og eitt í Argentínu. Í viðskiptamannahópi GSM eru meðal annarra framleiðendur á sólarrafhlöðum og örgjörvum, bílum, steypu , efnavöru, áli og stáli.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira