Viðskipti innlent

Skilanefnd Landsbankans setur Hamleys í sölu

Samkvæmt frétt á vefsíðunni RetailWeek hefur skilanefnd Landsbankans sett bresku leikafangaverslunina Hamleys í sölu. Páll Benediktsson talsmaður skilanefndarinnar hefur raunar sagt áður í samtali við Fréttastofu að mögulega yrði Hamleys selt á þessu ári.

Reikna má með að töluverður áhugi sé fyrir Hamleys. Þannig sagði í frétt á visir.is í síðasta mánuði að fjárfestingarsjóður frá Mið-austurlöndum hefur gert tilboð í breska leikfangarisann Hamleys upp á tæpa tíu milljarða króna. Hamleys er í meirihlutaeigu skilanefndar Landsbankans og er vonast til að hægt verði að ganga frá kaupunum í upphafi næsta árs.

Í febrúar í fyrra gekk gamli Landsbankinn að veðum vegna dótturfélaga Baugs í Bretlandi, meðal annars í leikfangarisanum Hamleys. Skilanefndin fer nú með um 65% hlut í félaginu.

Á þeim tíma sem liðinn er frá yfirtökunni hefur hagur Hamleys vænkast mjög undir stjórn Guðjóns Karls Reynissonar. Salan tók kipp upp á við, verslunum hefur verið fjölgað, ný markaðssvæði könnuð og í fyrra skilaði reksturinn hagnaði í fyrsta sinn í sex ár.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×