Heimilin draga úr einkaneyslu í ársbyrjun 15. febrúar 2011 12:06
Ef marka má kortaveltutölur virðast heimilin hafa haldið að sér höndum í einkaneyslu í upphafi ársins eftir nokkuð myndarlegan vöxt á síðustu mánuðum nýliðins árs. Kortavelta var þannig að raungildi svipuð í janúar síðastliðnum og í sama mánuði árið 2010. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að samanborið við janúar árið 2008 var veltan hins vegar nærri fjórðungi minni að raungildi í janúar síðastliðnum. Í nýbirtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun kemur fram að í janúar var kreditkortavelta samtals rúmlega 28,4 milljarðar kr., sem er nánast sama krónutala og fyrir ári síðan. Að raunvirði dróst veltan hins vegar lítillega saman, fyrst og fremst vegna nærri 4% minni veltu innanlands, en tæplega 30% aukning varð hins vegar að raunvirði í kreditkortaveltu Íslendinga erlendis. Samanlagt gefur raunbreyting kreditkortaveltu og innlendrar debetkortaveltu býsna góða mynd af þróun einkaneyslu. Á þann kvarða var kortavelta nánast óbreytt milli ára, sé miðað við debetkortanotkun í innlendum verslunum, en hins vegar dróst hún saman um nærri 2% milli ára ef stuðst er við heildarnotkun á debetkortum einstaklinga innanlands. Kveður hér við annan tón en í tölum undanfarinna mánaða þar sem nokkur aukning varð á veltunni miðað við framangreinda kvarða. Ekki er þó tímabært að draga miklar ályktanir af tölum eins mánaðar, en forvitnilegt verður að sjá hvaða mynd tölur næstu mánaða draga af þróun einkaneyslu. Kortaveltutölur gefa einnig vísbendingu um þróun þjónustujafnaðar við útlönd, a.m.k. þess hluta hans sem tengist ferðalögum milli landa. Fyrir hrun var landinn ávallt duglegri við kortanotkun erlendis en erlendir gestir voru hér á landi, en undanfarin misseri hefur orðið talsverð breyting þar á, sér í lagi yfir sumarmánuðina. Í fyrra var til að mynda nettó gjaldeyrisútflæði vegna kortaviðskipta einungis 2 milljarðar kr., en til samanburðar var útflæðið tæplega 35 milljarðar kr. á þenslu- og hágengisárinu 2007. Þessi breyting endurspeglar vitaskuld samanlögð áhrif lægra raungengis, sem hvetur jafn erlenda sem innlenda ferðamenn til ferðalaga hér á landi fremur en annars staðar, og mikillar kaupmáttarrýrnunar sem dregið hefur úr burðum heimila til að veita sér munað á borð við ferðalög erlendis, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira