Viðskipti innlent

GAMMA: Meðaldagveltan 10 milljarðar í janúar

Meðaldagsvelta á skuldabréfamarkaðinjm í janúar var um 10,2 milljarðar kr. Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti GAMMA um janúarmánuð.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði lítillega í janúar. Lækkuðu óverðtryggð bréf samkvæmt GAMMAxi um 0,8% á móti 0,3% hækkun verðtryggðra bréfa samkvæmt GAMMAi.

RB11 féll úr vísitölunni og lækkaði hlutfall óverðtryggðra bréfa í 28,8%. Nýtt óverðtryggt bréf RB31 bættist við vísitöluna með um 0,88% vigt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×