Ábyrgðarmenn gætu sloppið 14. febrúar 2011 19:12 Árni Helgason, héraðsdómslögmaður.
Fjöldi lánasamninga gæti verið í uppnámi vegna tíu ára gamals samkomulags um ábyrgð á skuldum einstaklinga. Í mörgum tilvikum gætu ábyrgðarmenn sloppið undan ábyrgðinni þar sem bankarnir hafa ekki gert greiðslumat hjá lántakendum. Til er samkomulag frá 2001 milli stjórnvalda og helstu fjármálafyrirtækja landsins um verklagsreglur í tengslum við ábyrgðarmenn einstaklinga. Það telst ekki til laga en er bindandi. Þar segir að fjármálafyrirtæki verði að meta greiðslugetu greiðanda fari lánsupphæð yfir eina milljón króna. Greiðslumatið á að vera undirritað af ábyrgðarmanni lánsins. Hafi það ekki verið gert er hægt að fella ábyrgðina úr gildi. Lánið stendur þó óbreytt. „Það auðvitað er ansi algengt að bankarnir eða lánastofnanir hafa ekki sinnt sínu hlutverki samkvæmt samkomulaginu frá 2001 um að kynna mönnum greiðslumat eða jafnvel ekki látið vinna greiðslumat yfir höfuð," segir Árni Helgason, héraðsdómslögmaður, og bætir við að í þeim tilvikum sé ekki hægt að byggja á ábyrgðinni. „Fólk þarf að benda á þetta sjálft. Það þarf að fara og átta sig á því að þetta var ekki gert. Þetta er til dæmis ekki eitthvað sem dómari skoðar sjálfkrafa. Bankarnir hafa ekki verið að taka upp sjálfir að skoða sín lánasöfn með tilliti til þessara ábyrgða." Ekki er vitað hversu mörg lán heyra undir samkomulagið en líklega gætu þau hlaupið á þúsundum. „Mín tilfinning er sú að þetta sé umtalsvert mikið. Þetta séu ansi mörg lán og margar sjálfskuldarábyrgðir sem gætu verið í uppnámi ef menn myndu láta á þetta reyna."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira