Viðskipti innlent

Stefnt að skráningu á árinu

verslað hjá högum Hópur fjárfesta hefur keypt stóran hlut í smásölurisanum Högum.  Fréttablaðið/Vilhelm
verslað hjá högum Hópur fjárfesta hefur keypt stóran hlut í smásölurisanum Högum. Fréttablaðið/Vilhelm
viðskipti Skrifað var undir sölu á 34 prósenta hlut Arion banka í Högum til hóps fjárfesta fyrir rúman 4,1 milljarð króna í gær, jafngildi 10 króna á hlut. Miðað við það nemur verðmæti Haga 24 milljörðum króna. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Kaupandi er Búvellir, félag að mestu í eigu fjárfestanna Hallbjörns Karlssonar, Árna Haukssonar, Sigurbjörns Þorkelssonar og Tryggingamiðstöðvar­innar. Aðrir eigendur Búvalla eru lífeyrissjóðir, fagfjárfestingarsjóðir og einstaklingar. Enginn hlutur er stærri en svo að svari til 8,5 prósenta hlutar í Högum. Kaupin eru að fullu fjármögnuð með eiginfjárframlögum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Arion banka.

Eignahluturinn er umfram yfirtökuskyldu skráðra félaga á markaði. Stefnt er að skráningu Haga á markað síðar á árinu og þykir líklegt að lífeyrissjóðir muni um svipað leyti færa hlutafjáreign sína í Högum undir eigin félög. - jab





Fleiri fréttir

Sjá meira


×