SP hefur endurútreiknað 20.000 lánasamninga 28. janúar 2011 14:21
Endurútreikningi á um 20 þúsund lánasamningum er þegar lokið hjá SP-Fjármögnun. Þar af eru 5 þúsund samningar sem hafa verið yfirteknir á samningstímanum en lög, sem tóku gildi 22. desember sl., kveða á um með hvaða hætti yfirtekin lán skulu meðhöndluð. Í tilkynningu segir að samkvæmt lögunum miðast réttindi hvers og eins við þann tíma sem viðkomandi var lántaki samningsins. Leiðréttingin verður því tvíþætt, þ.e. annars vegar greiðsluuppgjör út frá breyttum vaxtaforsendum og hins vegar höfuðstólsleiðrétting vegna gengisbreytinga. Þessi reikniaðferð gerir það að verkum að samningar geta í einstaka tilvikum hækkað. Af þeim 20 þúsund samningum sem hafa verið endurútreiknaðir hjá SP-Fjármögnun hafa eftirstöðvar samninganna lækkað að meðaltali um 49%. Alls hafa 53% viðskiptavina SP-Fjármögnunar, sem eiga inneign eftir endurútreikning, óskað eftir að fá hana greidda út en 47% þeirra hafa óskað eftir að skuldajafna inneigninni. SP-Fjármögnun hefur greitt út um 1,3 milljarða til viðskiptavina sinna eftir endurútreikninga. Starfsfólk SP-Fjármögnunar á enn eftir að endurútreikna tæplega 10 þúsund samninga og stendur sú vinna yfir. Stefnt er að því að viðskiptavinir SP-Fjármögnunar fái upplýsingar um stöðu endurútreikninga innan þess tíma sem lögin kveða á um en lánafyrirtæki fá allt að 60 daga frest frá gildistöku laganna til að senda lántaka útreikning á nýjum höfuðstól og/eða endurgreiðslu ofgreidds fjár en uppgjör skal fara fram innan 90 daga.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira