Verulegur samdráttur í kaupum á atvinnuhúsnæði 27. janúar 2011 11:47
Mjög hefur dregið úr viðskiptum með atvinnuhúsnæði í kreppunni. Í desember síðastliðnum var 129 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu öllu samanborið við 154 í sama mánuði árið 2009. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í sama mánuði árið 2006, þegar viðskiptin voru hvað mest á þessum markaði í aðdraganda hrunsins, var 229 kaupsamningum þinglýst . Fjöldi viðskiptanna í desember í fyrra var því rétt helmingur þess sem hann var í sama mánuði 2006. Kemur þetta fram í gögnum sem Þjóðskrá Íslands birti nýlega. Það er í sjálfu sér afar eðlilegt að viðskipti með atvinnuhúsnæði dragist saman þegar heildareftirspurn í hagkerfinu dregst jafn mikið saman og hún hefur gert hér á landi frá hruni. Þannig hefur verslun dregist umtalsvert saman og fjöldi fyrirtækja í þeirri grein orðið gjaldþrota. Mikið var byggt af þessu húsnæði fyrir hrunið og nú stendur stór hluti þess auður og að hluta ókláraður í bið eftir næstu uppsveiflu. Hrunið á þessum markaði hefur verið öllu meira á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Þannig voru viðskiptin með atvinnuhúsnæði ríflega 72% minni á síðasta ári með eignir á höfuðborgarsvæðinu í fyrra en á árinu 2006 en einungis ríflega 19% minni á landsbyggðinni. Á móti var þenslan á þessum markaði í aðdraganda hrunsins einnig öllu meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni.Nú þegar vísbendingar berast víðsvegar úr hagkerfinu um að kreppan hafi náð botni virðist ekki hið sama gilda um markaðinn með atvinnuhúsnæði. Kreppan er þar enn að grafa sig dýpra. Þó hefur hægt á samdrættinum en hann var tæplega 13% á seinni hluta síðastliðins árs samanborið við tæplega 18% á fyrri hluta ársins.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira