Viðskipti innlent

Afli fyrir tvo milljarða á uppboðsmarkað í fyrra

Á árinu 2010 var samtals landað yfir uppboðsmarkað hjá Faxaflóahöfnum 7.250 tonnum af fiski fyrir rétt um tvo þúsund milljónir króna.

Fjallað er um málið á vefsíðu Faxaflóahafna. Þar segir að Fiskmarkaðurinn í Reykjavík tók á móti 6.100 tonnum á árinu en auk þess annaðist markaðurinn vigtun á um það bil 1.000 tonnum sem er nýjung í þjónustu hjá markaðinum á Grandagarði.

Árið 2009 tók markaðurinn á móti 5.700 tonnum og er því nokkur magnaukning á árinu 2010. Samtals var landað 1.150 tonnum af fiski yfir markað á Akranesi árið 2010 og nam andvirði aflans 324 milljónum.

Á báðum stöðum var hærra meðalverð á kíló árið 2010 miðað við 2009. Uppistaðan í aflanum á báðum stöðum er þorskur og ýsa en í Reykjavík er einnig nokkuð magn af steinbít.

Á Akranesi kemur mest af aflanum frá trillum en í Reykjavík er magnið úr togurum, landróðrabátum og trillum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×