Intrafish gagnrýnir viðræður um sölu á Icelandic Group 28. janúar 2011 00:01 Færibandavinna Í verksmiðju Pickenpack, dótturfélags Icelandic Group í Þýskalandi.
Viðskipti Alþjóðlega sjávarfrétta- og greiningarfyrirtækið Intrafish gagnrýnir harkalega viðræður og mögulega sölu Framtakssjóðs Íslands á erlendu verksmiðjuneti Icelandic Group til evrópska fjárfestingarsjóðsins Triton. Í nýjum pistli Tom Seaman, blaðamanns fréttastofu Intrafish, er orðspor Íslands sagt að veði, verði verksmiðjurnar seldar Triton án þess að opnað verði á viðræður við fleiri. Hann segir virktavinavæðingu og tengsl stjórnmála og viðskipta hafa verið til siðs á Íslandi fyrir hrunið 2008. „Og söluferli Icelandic Group virðist ekki vera af öðrum meiði." Seaman segir aðkomu Friðriks Jóhannssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Icelandic Group, sem hafði milligöngu um tilboð Tritons, auka á tortryggni og ýta undir samsæriskenningar um söluferlið. Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarsjóðs Íslands, hefur ítrekað vísað á bug sögusögnum um aðkomu Íslendinga að Triton, og segir sjóðinn sjálfráðan um með hverjum hann kjósi að vinna, gangi sala í gegn. Ágúst Einarsson, stjórnarformaður Framtakssjóðsins, hefur einnig sagt að enginn hafi boðið jafn vel og Triton og því hafi verið gengið til viðræðna. Náist ekki samkomulag kunni nálgunin að verða önnur þegar frekari skref verði tekin í sölunni á verksmiðjustarfsemi Icelandic Group. Viðræðum við Triton á að ljúka í þessum mánuði.- óká
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira