Viðskipti innlent

Veruleg veltuaukning á fasteignamarkaðinum

Veruleg aukning varð á veltunni á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var þinglýst 81 kaupsamningi sem er rétt tæplega 20 samningum meira en nemur meðaltali síðustu 12 vikna.

Heildarveltan reyndist tæpir 2,9 milljarðar kr. sem er milljarði meira en nemur meðaltalinu. Meðalverð á fasteign var 35,4 milljónir kr. sem var 6 milljónum kr. hærri en meðaltal síðustu 12 vikna. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Á vefsíðunni segir að fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 4. febrúar til og með 10. febrúar 2011 var 81. Þar af voru 50 samningar um eignir í fjölbýli, 25 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.871 milljón króna og meðalupphæð á samning 35,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum og var hann um eign í fjölbýli. Upphæð samnings var 11 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 104 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 122 milljónir króna og meðalupphæð á samning 40,7 milljónir króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×