Spáir 1,7% verðbólgu í febrúar 16. febrúar 2011 11:14
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka í febrúar um 1,0% frá janúarmánuði. Gangi spáin eftir verður verðbólgan 1,7% í mánuðinum og lækkar úr 1,8% í janúar. Hagstofan mun birta vísitölumælingu sína kl.9 þann 24. febrúar næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að útsölulok vega allþungt í hækkun VNV að þessu sinni. „Við gerum ráð fyrir að verðhækkun á fötum og skóm leiði til 0,24% hækkunar VNV í febrúar, og að samanlagt hafi hærra verð á nýjum varningi við útsölulok áhrif til u.þ.b. 0,5% hækkunar vísitölunnar. Þá hefur eldsneyti hækkað umtalsvert frá síðustu verðmælingu Hagstofunnar og leiðir það til 0,13% hækkunar VNV að mati okkar," segir í Morgunkorninu. „Einnig er mikil hækkun landbúnaðarvara erlendis ásamt veikingu krónunnar frá áramótum farin að segja til sín í matvælaverði, og gerum við ráð fyrir að hærra verð fyrir mat- og drykkjarvöru hafi áhrif til 0,12% hækkunar VNV í febrúar. Húsnæðisliður VNV mun að öllum líkindum lítið breytast milli mánaða." Nokkur verðþrýstingur er fyrir hendi til skemmri tíma litið vegna mikillar hækkunar á hrávöruverði erlendis og veikingar krónu frá áramótum. Auk þess munu útsölulok enn hafa einhver hækkunaráhrif í mars. „Áætlum við að á heildina litið muni vísitala neysluverðs hækka um 2,1% milli janúar- og aprílmælinga hennar. Þó gerum við ráð fyrir að verðbólga muni haldast hófleg og reynast í grennd við 2,5% markmið Seðlabankans út árið. Spáum við því að verðbólga yfir árið 2011 reynist 1,9%," segir í Morgunkorninu. „Spá okkar gerir ráð fyrir tiltölulega stöðugu gengi krónu, hóflegri hækkun launa og hækkun íbúðaverðs þegar fram í sækir. Óvissa tveggja fyrrnefndu þáttanna er fremur á þann veg að verðbólguþrýstingur vegna þeirra geti orðið meiri en hér er spáð, en óvissa síðastnefnda áhrifaþáttarins er að mati okkar frekar til þess að draga úr verðbólguþrýstingi á spátímanum."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira