Viðskipti innlent

Framleiðsluvísitalan hækkaði um 1,7%

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað. Mynd/ Arnþór.
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað. Mynd/ Arnþór.
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði í desember um 1,7% frá fyrri mánuði og stóð hún í 198 stigum í desember. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var nær óbreytt, 225,2 stig, og vísitala fyrir stóriðju var 241,9 stig, hækkaði um 2,5%. Vísitalan fyrir matvæli stóð í stað og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 5,6%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,3% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,8%.

Miðað við desember 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 2,6% en verðvísitala sjávarafurða lækkað um 3,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 11,0% en matvælaverð hefur hækkað um 3,2%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×