Viðskipti innlent

Gerðardómur klofinn í sektarmáli Símans

Ósáttir Samningurinn snerist um farsímaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum. Símamenn eru ósáttir við dóminn og munu gera það sem þeir geta til að hann verði ekki aðfararhæfur á Íslandi.
Ósáttir Samningurinn snerist um farsímaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum. Símamenn eru ósáttir við dóminn og munu gera það sem þeir geta til að hann verði ekki aðfararhæfur á Íslandi.
Íslendingurinn í þriggja manna gerðardómi skilaði sératkvæði í máli Símans og franska fyrirtækisins Seamobile. Hans niðurstaða var afgerandi: Engin rök stæðu til þess að dæma Símann til að greiða Seamobile 1,2 milljarða eins og hinir dómararnir töldu og varð niðurstaða dómsins.

Málið snýst um samning sem Landssíminn gerði við fyrirtækið Geolink árið 2003 um farsímaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum og ferjum. Samkvæmt samningnum átti Geolink að koma búnaðinum upp og fá fimmtán prósent hagnaðarins í staðinn. Seamobile keypti síðar Geolink.

Síminn er nú með samning um þjónustu við nærri áttatíu slík skip í gegnum dótturfyrirtæki sitt On-Waves. Á háannatíma nýta 100 þúsund farþegar þjónustuna.

Árið 2006 ákvað Síminn að segja upp samningnum við Geolink. Ástæða uppsagnarinnar var tæknilegir örðugleikar, sem gerðu það meðal annars að verkum að erfitt var að greina á milli símnotkunar á hafi úti og í landi og rukka í samræmi við það. Þrátt fyrir þetta sendi Geolink ítrekað reikninga, byggða á áætlunum, sem Síminn mat allt of háa. Við það töldu forsvarsmenn Símans að yrði ekki unað og sögðu samningnum upp. Síminn samdi í kjölfarið við On-Waves, dótturfyrirtæki sitt.

Síðan hafa staðið deilur um málið fyrir dómstólum, sem að lokum enduðu fyrir gerðardómi í samræmi við upprunalegan samning. Seamobile telur uppsögnina ólögmæta og að hún hafi valdið fyrirtækinu miklu tjóni.

Í gerðardómnum sátu fulltrúar Símans og Seamobile og einn fulltrúi Alþjóðaviðskiptaráðsins. Fulltrúi Símans var hæstaréttarlögmaðurinn Stefán Geir Þórðarson. Í samningnum var kveðið á um að gerðardómurinn skyldi dæma eftir íslenskum lögum.

Í vikunni ákvað dómurinn að Síminn skyldi greiða Seamobile 7,7 milljónir evra, jafnvirði 1,2 milljarða króna, í bætur vegna uppsagnarinnar. Stefán Geir var ósammála og skilaði sératkvæði. Niðurstaðan væri ekki í neinu samræmi við íslenska dómaframkvæmd.

Síminn hyggst reyna að koma í veg fyrir það að dómurinn verði aðfararhæfur hér á landi, að sögn Andra Árnasonar, lögmanns Símans, enda sé talið að gerðardómurinn hafi farið langt út fyrir gerðarsamninginn í ákvörðun sinni.stigur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×