„Þá eru bara eftir gjafir fyrir þá nánustu og ég er yfirleitt mjög seinn með gjöfina handa konunni og ég lít á það meira sem jólahefð heldur en trassaskap."

Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Gleði strákanna minna og tilhlökkun, Harry Connick jr jóladiskurinn minn, snjór, svínabógur og rauðkálið hennar mömmu," svarar Jóhann.

„Jólin 2006 þegar við kláruðum að taka íbúðina okkar í gegn," svarar Jóhann þegar við spyrjum hann út í eftirminnileg jól.
„Við fluttum inn 23. desember en héldum jólin heima, á nýrri eldavél sem var ekki búið að stilla gasið á og minnti meira á eldvörpu en eldavél, fúgan á flísunum enn rök og ekki mátti snerta veggina því önnur umferðin af málningunni var ekki alveg þurr," segir hann.

„En við komumst inn fyrir jól og þau voru svo yndisleg fyrir vikið."
„Reyndar sofnaði ég í stólnum þegar ég átti að vera að lesa á pakkana en mér var fyrirgefið," segir Jóhann.
„Við fjölskyldan verðum heima eins og undanfarin ár," svarar Jóhann spurður út í aðfangadagskvöldið í ár.
„Við verðum mögulega með tvískiptan matseðil í ár en annars verður það frekar hefðbundið, förum smá rúnt með pakka um morguninn, strákarnir horfa á jóladagskrána í sjónvarpinu, bað og jólafötin, maturinn, smartísgrautur og verðlaun, aðalréttur og svo ís á eftir," segir Jóhann.
„Gengið frá eftir matinn og svo farið í pakkana. Eftir pakka er mátað, græjur prófaðar og hringt og þakkað fyrir, svo er farið að sofa," segir hann.-elly@365.is