Erfiðlega gæti reynst að finna fordæmisgildi 15. febrúar 2011 19:17
Fyrirtæki eiga sama rétt á endurútreikningi eins og einstaklingar vegna ólögmætra gengistryggðra lána til fasteignakaupa samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Frjálsi fjárfestingabankinn þarf að endurreikna höfuðstól 500 fyrirtækjalána til viðbótar, sem skipta milljörðum. Einkahlutafélagið Tölvupósturinn tók lán hjá Frjálsa fjárfestingabankanum til húsnæðiskaupa 2007. Félagið taldi sig hafa ofgreitt af láninu og lýsti kröfum sínum til slitastjórnar Frjálsa sem var hafnað. Tölvupósturinn höfðaði svo mál á hendur Frjálsa. Ágreiningur þeirra snérist um hvort fasteignalánið hefði verið í íslenskri eða erlendri mynt. Frjálsi hélt því fram að lánið væri í erlendri mynt en Tölvupósturinn í íslenskum krónum. Hæstiréttur úrskurðaði í gær að lánið væri ólögmætt gengistryggt fasteignalán og vísaði í eldri dóm þess efnis. Nú er Frjálsi fjárfestingarbankinn að endurreikna um 2500 ólögmæt lán til einstaklinga. Við dóminn í gær bætast við um 500 fyrirtækjalán sem skipta milljörðum. Alls þarf bankinn að endurreikna lán sem nema allt að hundrað milljörðum. Magnús Pálmarsson, talsmaður Frjálsa, segir að bankinn hefji endurútreikning gengistryggðra fasteigna lána fyrirtækja og gengið verði frá þeim málum eins fljótt og unnt er. En hvað segir efnahags og viðskiptaráðherra um dóminn? „Hann staðfestir að það sem löggjafinn gerði fyrir jól var hárétt. Það er að segja að það sama gildi í grundvallaratriðum um gengistryggð íbúðalán og gengistryggð bílalán," segir Árni Páll Árnason. Dómurinn hafi því ekki áhrif á lögin sem samþykkt voru á síðasta ári. Hins vegar geti reynst erfitt að finna fordæmisgildi gagnvart öðrum fyrirtækjalánum. Dómstólar verða að skera úr um þá. „Það er ekki alveg hægt að ráða af dómnum hvað þetta þýðir fyrir fyrirtækjalán að öðru leyti," segir Árni Páll.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira