Viðsnúningur um 11 milljarða til hins betra hjá Icelandair 14. febrúar 2011 14:38
Hagnaður Icelandair Group eftir skatta var 1,4 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi í fyrra samanborið við 9,6 milljarða króna tap á sama tímabili árið áður. Þetta er viðsnúningur upp á 11 milljarða til hins betra hjá félaginu. Hagnaður eftir skatta fyrir árið í heild var 4,6 milljarðar króna en tap eftir skatta nam 10,7 milljörðum króna árið 2009. Í tilkynningu um uppgjörið segir að heildarvelta var 88,0 milljarðar króna allt árið í fyrra og jókst um 10% á milli ára. Söluhagnaður eigna í tengslum við endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins nam 4.2 milljörðum króna. Fjármagnskostnaður var 0,6 milljarðar króna samanborið við 2,9 milljarð króna árið áður. Handbært fé og skammtímaverðbréf í lok ársins 2010 var 13 milljarðar króna, en var 1,9 milljarðar árið áður. Heildareignir námu 84,2 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var 33,7 % í lok árs 2010, en voru 89,1 milljarðar og 16,4% í lok árs 2009. „Eitt viðburðarríkasta ár í sögu félagsins er að baki. Í fyrsta lagi skilaði félagið besta rekstrarárangri frá upphafi og nam EBITDA 12,6 milljörðum króna og var 4,4 milljörðum króna hærri en árið 2009. Niðurstaðan er mun betri en upphaflegar áætlanir okkar gerðu ráð fyrir og einnig betri en síðasta afkomuspá okkar gaf til kynna en hún hljóðaði uppá EBITDA 11,5 milljarða króna. Bætt afkoma félagsins skýrist fyrst og fremst af mikilli aukningu í farþegatekjum hjá Icelandair," segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair í tilkynningunni. „Farþegatekjur jukust vegna bættrar sætanýtingar og góðrar tekjustýringar í leiðakerfinu. Farþegum á Norður-Atlantshafsmarkaðnum fjölgaði mikið og námu þeir 38% af heildarfarþegafjölda félagsins samanborið við 28% árið 2009. Til viðbótar er ánægjulegt að greina frá því að flest dótturfélög okkar skiluðu góðri afkomu á árinu. Í annan stað sýndi félagið og starfsfólkið okkar fádæma sveigjanleika og áræðni í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli í apríl síðastliðnum. Á sama tíma og nær allar flugsamgöngur í Evrópu lömuðust í um vikutíma náðum við að halda okkar flugáætlun uppi með því að flytja tengibankann til Glasgow, ásamt því að fljúga til Akureyrar í stað Keflavíkur. Þrátt fyrir að eldgosið hafi verið félaginu kostnaðarsamt til skemmri tíma þá er það mín trú að landkynningin sem gosið olli muni til lengri tíma skila sér í fjölgun ferðamanna til landsins. Í þriðja lagi lauk fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins, en mikil vinna fór í það ferli á árinu og er ég mjög ánægður með árangurinn. Endurskipulagningin skiptist í þrjá meginþætti: útgáfu nýs hlutafjár, breytingu skulda stærstu lánveitenda í hlutafé og lækkun vaxtaberandi skulda vegna sölu eigna. Í kjölfarið hækkar eiginfjárhlutfallið úr 16,4% í lok árs 2009 í 33,7% í lok árs 2010."
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira