Viðskipti innlent

Jón Ásgeir segir að það hafi reynst „þvæla að keyra Baug í þrot“

Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi og stjórnarformaður Baugs Group.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi og stjórnarformaður Baugs Group.

Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður og aðaleigandi Baugs Group, segir að góður árangur fyrirtækja sem áður voru í eigu Baugs bæði hér á landi og erlendis sýni að staða fyrirtækisins hafi verið mun betri en haldið hafi verið fram í fjölmiðlum hér á landi.

Greint hefur verið frá því, síðast í breskum fjölmiðlum í morgun, að skilanefnd Landsbankans stefni að því að selja 67 prósenta hlut sinn í Iceland Foods verslanakeðjunni á verði sem þýðir að fyrirtækið í heild sinni er 1,5 milljarða punda virði, jafnvirði 276 milljarða króna. Fréttastofa hefur áður greint frá því að tilboði frá Malcolm Walker, forstjóra Iceland Foods, sem miðaði að því að fyrirtækið væri eins milljarðs punda virði, var hafnað af skilanefndinni.

Segir að Baugur hefði getað greitt upp skuldir í upphafi næsta árs

Jón Ásgeir segir í samtali við fréttastofu að Iceland Foods, sem áður var í eigu Baugs Group, sé aðeins eitt af mörgum fyrirtækjum sem áður voru í eigu Baugs sem gangi vel um þessar mundir. Á meðal verslana í eigu Baugs í Bretlandi voru auk Iceland m.a House of Fraser og Hamleys.

„Það er ljóst að verslanakeðjur sem áður voru í eigu Baugs eru að skila góðum árangri í Bretlandi, Íslandi, Færeyjum og Danmörku. Sem er nú í andstöðu við það sem fjölmiðlar hafa verið að halda fram hér á landi um allt sem var keypt erlendis hafi verið bull og vitleysa. Það er einnig ljóst í dag að það var þvæla að keyra Baug í þrot. Hefði endurskipulagningarferli það sem við lögðum á borð banka náð fram að ganga hefði Baugur getað greitt upp allar skuldir í upphafi næsta árs, þremur árum á undan þeirri áætlun sem lögð var fram á sínum tíma undir vinnuheitinu Project Sunrise," segir Jón Ásgeir. Hann bendir einnig á að allir þeir forstjórar sem Baugur réð til starfa í verslunarfyrirtækjum starfa enn sem forstjórar í þesum fyrirtækjum í dag.

Baugur Group er í gjaldþrotameðferð í dag. Heildarkröfur í þrotabú Baugs námu samtals 319 milljörðum króna. Rúmlega þriðjungur þeirrar upphæðar voru veðtryggðar kröfur og hafa stórir kröfuhafar eins og Landsbankinn nú þegar gengið að veðum sínum, t.d í Iceland Foods. Erlendur Gíslason, annar tveggja skiptastjóra þrotabúsins, hefur sagt að ekki sé algengt þegar um gjaldþrota fyrirtæki sé að ræða að endurheimtuhlutfall almennra krafna fari yfir 10 prósent. Hann hefur hins vegar sagt að ekki sé tímabært að ræða endurheimtur fyrr en niðurstöður úr dómsmálum sem þrotabúið hefur höfðað liggi fyrir, en þrotabúið hefur höfðað fimm riftunarmál þar sem samtals fjárhæð krafna hleypur á tugum milljarða króna.


Tengdar fréttir

Telegraph: Iceland til sölu á 274 milljarða

Breska blaðið Daily Telegraph segir í frétt í dag að breska verslunarkeðjan Iceland verði seld á næstu tíu mánuðum og reiknað sé með að söluverðið nemi allt að 1,5 milljarði punda eða 274 milljörðum kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×