Segir úrskurð Hæstaréttar stórsigur fyrir lánþega 15. febrúar 2011 10:03
Nýfallin úrskurður Hæstaréttar í máli Tölvupóstsins ehf. gegn Frjálsa fjárfestingabankanum er stór sigur fyrir lánþega, hvort heldur um er að ræða einstaklinga eða lögaðila. Þetta segir í tilkynningu frá Samtökum lánþega. Hér er um að ræða eitt af þeim fjölmörgu málum sem urðu til í kjölfar kröfugerðar lánþega í þrotabú bankans sem gerð var að frumkvæði Samtaka lánþega og völdu Samtök lánþega mál Tölvupóstsins ehf. til að fá fordæmi í ágreininginn og kostuðu allan málareksturinn. „Verður að teljast til tíðinda að jafn lítil og fjárvana samtök leggi út í slíka skuldbindingu á sama tíma og öll helstu samtök alþýðunnar þora helst ekki að opna munninn gegn fjármálafyrirtækjum," segir í tilkynningunni. „Í nýföllnum úrskurði er fyrst að telja að Hæstiréttur heimilar ekki afturvirkan vaxtaútreikning og miðast vaxtabreyting lána því við dómsuppsögu. Í öðru lagi er viðurkennt að öll gengistryggð húsnæðislán sem eru efnislega samhljóða lánum Frjálsa fjárfestingabankans hf., bera ólögmæta gengistryggingu. Í þriðja lagi er ljóst að uppgjör á gengistryggðum lánum eins og það er fram sett í nýsettum lögum efnahags- og viðskiptaráðherra er andstætt niðurstöðu Hæstaréttar. Í fjórða lagi er hér viðurkennt, þvert á téð lög, að lögaðilar njóti sama réttar og einstaklingar við uppgjör á lánum með ólögmæta gengistryggingu. Því er ljóst að lögin eru ekki bara gagnslaus til viðmiðunar við uppgjör lána með ólögmæta gengistryggingu. Heldur ganga þau í öllum meginatriðum gegn rétti lánþega. Samkvæmt þessari niðurstöðu er ljóst, að stöðva verður þegar innheimtu fjármálastofnana á afturvirkum vaxtagreiðslum. Jafnframt er ljóst að Alþingi verður að endurskoða lögin og jafnvel draga þau til baka. Ennfremur verða fjármálafyrirtæki að senda lánþegum nýja útreikninga vegna uppgjörs á lánum sem innihalda ólögmæta gengistryggingu. Þangað til þessum skilyrðum er fullnægt er lánþegum gert ókleyft að greiða af umræddum lánum, enda algjör og fullkomin óvissa um uppgjör og eftirstöðvar," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira