Viðskipti innlent

Ríkiskaup gera rammasamning við Olís

Ríkiskaup hafa nú endursamið við Olís til næstu tveggja ára um hreinlætisefni og hreinlætispappír í kjölfar útboðs um slíkar vörur.

Í tilkynningu segir að samningur þessi gerir ríkisstofnunum og sveitarfélögum kleift að spara umtalsvert í sínum innkaupum. Samið var um tvo meginflokka, hreinlætisefni og hreinlætispappír. Hreinlætispappír telst vera salernispappír, eldhúsrúllur, handþurrkur, munnþurrkur, o.fl.

Í flokk hreinlætisefna falla hreingerningaefni af ýmsu tagi, s.s. handsápa og handspritt, gólfsápa og bónvörur, WC hreinsiefni, þvottaefni fyrir tauþvott og uppþvottavélar o.fl., en einnig ræstivagnar og fylgihlutir, burstar, klútar, svampar, moppur, skrúbbar, grindur, fötur o.fl. Allir þessir vöruflokkar eru í vöruúrvali Olís.

Í útboðinu var tekið fram að æskilegt væri að boðnar vörur væru umhverfisvænar, skv. handbók umhverfisráðuneytis um umhverfisvæn innkaup, en undanfarin ár hefur Olís lagt mikla áherslu á að auka vöruúrval umhverfisvænna vara.

Vörur geta viðskiptavinir nálgast hjá söludeild Olís eða hjá útibúum Olís á 40 stöðum víðsvegar um landið. Þannig getur Olís þjónað viðskiptavinum sínum fljótt og örugglega í heimabyggð samkvæmt rammasamningnum. Olís metur það traust sem Ríkiskaup sýna félaginu með nýjum samningi en félagið hefur allt frá árinu 2002 verið með rammasamning við Ríkiskaup um kaup á hreinlætisvörum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×