Fasteignir í Reykjavík þær fjórðu ódýrustu í Evrópuborgum 11. febrúar 2011 10:34
Fasteignir í miðbæ Reykjavíkur, mældar í evrum, eru afar ódýrar í samanburði við aðrar borgir í Evrópu. Reykjavík er í fjórða neðsta sæti. Einungis í Búdapest, Skopje (Makedónía) og Chisinouv (Moldavía) er að finna lægra fasteignaverð. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka. Þar segir að þannig hafi 10% verðlækkun á fasteignamarkaði og 85% hækkun á evru gagnvart krónu frá árinu 2007 leitt til þess að íbúðaverð hér heima hefur fallið um 16 sæti á þremur árum á listanum yfir fasteignaverð í helstu borgum Evrópu og Rússlands. Samkvæmt listanum er fasteignir langdýrastar í Mónakó og kosta nær 45.000 evrur á fermetrann. Næst á eftir kemur London með rúmar 17.000 evrur á fermetrann og Moskva er í þriðja sæti með um 14.000 evrur á fermetrann. Í Reykjavík er fermetraverðið á listanum mælt á 1.650 evrur eða um 260.000 kr. á fermetrann. Í borginni Chisinouv sem er neðst á listanum er verðið í kringum 1.000 evrur á fermetrann. Í Markaðspunktunum segir að þrátt fyrir að horfur á fasteignamarkaði hafi að mörgu leyti batnað á síðustu mánuðum þá er ljóst að framvinda í efnahagsmálum næstu mánuði og misseri mun skipta miklu máli. Til skamms tíma hafa gjaldeyrishöftin jákvæð áhrif á eignaverð í landinu. Krónan helst stöðug í skjóli haftanna, peningarnir komast ekki úr landi og því eru eingöngu innlendir fjárfestingakostir í boði og höftin halda vöxtunum niðri. Til langs tíma hafa gjaldeyrishöftin hins vegar neikvæð áhrif á eignaverð í landinu. Hagvöxtur til langstíma verður minni þar sem erfiðara verður að draga erlenda fjárfestingu inn í landið auk þess sem aðgengi að erlendum fjármálamörkuðum verður að öllum líkindum minna en ella.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira