Íbúðalánasjóð skortir lagaheimild til færa niður lán 2. febrúar 2011 11:00
Íbúðalánasjóð skortir heimild í lögum til að afgreiða umsóknir um niðurfærslu fasteignalána. Velferðarráðherra segir að lagabreyting sé á leiðinni inn í þingið. Ljóst er að skuldarar þurfa að bíða töluvert lengur en vonir stóðu til þegar samkomulag um aðlögun fasteignalána var undirritað um miðjan janúar. Þeir 33 milljarðar sem stjórnvöld hafa lagt sjóðnum til nægja ekki til að mæta þörfum sjóðsins, segir Sigurður Snævarr, ráðgjafi forsætisráðherra í efnahags- og atvinnumálum. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að breyta þurfi lögum um Íbúðalánasjóð svo sjóðurinn hafi heimild til niðurfærslu fasteignalána. „Sú lagabreyting, sem er tillaga mín og ríkisstjórnarinnar, er á leiðinni inn í þingið en það er alveg klárt að staðið verður við samkomulagið eins og það er." Um 47. grein laga um húsnæðismál [laga um ÍLS] er að ræða en hana má skilja þannig að einungis megi fella niður þann hluta láns sem þegar er sjóðnum tapaður. „Menn vilja styrkja þetta ákvæði um afskriftir til að framkvæmdin sé örugglega lögleg," segir Guðbjartur. Spurður hvort þetta hefði ekki legið fyrir þegar skrifað var undir samkomulag um aðlögun fasteignalána um miðjan janúar segir Guðbjartur að það hafi verið álitamál hvort lagabreytingu þyrfti eða hvort heimild til afskrifta væri nægilega skýr. Sigurður Snævarr segir að stjórnvöld hafi þegar lagt sjóðnum til 33 milljarða króna til að styrkja eiginfjárstöðu hans og mæta afskriftum. „En þeir þurfa meira og það þarf að ganga frá lögum til að hægt sé að setja meira fé inn í sjóðinn." Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri ÍLS, vildi lítið tjá sig um málefni sjóðsins þegar eftir því var leitað. Hann segir að verið sé að fullvinna verklagsreglur sem sé flókið. Hann segir ljóst að fyrstu umsóknir um niðurfærslu lána verði ekki afgreiddar fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. Frá því að samkomulagið var undirritað hafa 300 sótt um niðurfærslu lána en Sigurður á von á því að níu þúsund fasteignaeigendur muni sækja um áður en yfir lýkur. - shá
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira