Viðskipti innlent

Kortavelta heimila jókst um 7,7% í fyrra

Kreditkortavelta heimila jókst um 7,7% í fyrra miðað við árið áður. Debetkortavelta jókst um 3,7% á sama tíma. Samtals jókstv greiðslukortavelta heimila á síðasta ári um 5,7%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 20,6% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 11,9% á árinu 2010 miðað við árið áður.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 7,5% sem veldur 1,7% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×