Sjálfsskuldarábyrgð stangast á við sveitarstjórnarlög 17. febrúar 2011 09:51
Í byrjun febrúar 2011 barst bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ lögfræðiálit frá LEX sem sveitarfélagið lét gera vegna fyrirgrennslan Íbúahreyfingarinnar á lögmæti sjálfskuldarábyrgðar Mosfellsbæjar á láni Landsbanka til Helgafellsbygginga upp á 246 milljónir kr. Í innihaldi álitsins felst viðurkenning á því sjónarmiði sem Íbúahreyfingin hefur haldið á lofti, það er að umrædd sjálfskuldarábyrgð stangist á við sveitarstjórnarlög. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúahreyfingunni um málið. Þar segir að í minnisblaði bæjarstjóra þar sem brugðist er við álitinu er því borið við að bæjaryfirvöld hafi talið að gerningar þeir sem til umfjöllunar eru í álitinu falli undir „daglegan rekstur" bæjarfélagsins, en framkvæmdastjóri bæjarfélags má skv. sveitastjórnarlögum ábyrgjast fyrir hönd bæjarfélagsins slík minniháttar viðskipti. Íbúahreyfingin vísar þeirri túlkun á bug enda um mjög háa fjárhæð að ræða og viðskipti sem tæpast eiga sér hliðstæðu í bókhaldi bæjarfélagsins. Þá ber meðferð málsins þess merki að ekki hafi verið litið á afgreiðslu þess sem daglegan rekstur. Málið var afgreitt í bæjarráði og bæjarstjórn, sem varla er venja með daglegan rekstur sveitarfélagsins. Þá skrifar prókúruhafi bæjarins undir ábyrgðina með vísun í afgreiðslu 950. fundar bæjarráðs. Þegar ráðist var í uppbyggingu íbúðahverfa samkvæmt „nýrri hugmyndafræði" Sjálfstæðisflokksins um einkarekna samfélagsuppbyggingu var því heitið að enginn kostnaður félli á íbúa Mosfellsbæjar, eða eins og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, orðaði það í blaðagrein haustið 2005:„Ljóst er að kostnaður við uppbyggingu leggst ekki á þá íbúa sem fyrir eru í bæjarfélaginu heldur stendur framkvæmdin sjálf undir þeim kostnaði. Þetta eru ánægjuleg tíðindi fyrir Mosfellinga." Undirritun sjálfskuldarábyrgðarinnar virðist því vera hvoru tveggja pólitískt skipbrot einkavæðingarstefnunnar og lögbrot. Í ljósi þess trúnaðarbrests sem orðinn er milli Mosfellinga og þeirra kjörnu fulltrúa sem ábyrgð bera á sjálfskuldarábyrgðinni fór Íbúahreyfingin fram á afsögn umræddra kjörinna fulltrúa á 552. fundi bæjarstjórnar í gær. Þá vill Íbúahreyfingin að málinu verði vísað til úrskurðar Innanríkisráðuneytisins, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira