Mat greiningar: Ágætar horfur hjá Marel 7. febrúar 2011 10:55 „
Uppgjör Marels ber með sér þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað undanfarið en félagið hefur gengið í gegnum mikla endurskipulagningu. Horfurnar eru með ágætum enda félagið minna skuldsett en áður, þar að auki er það fjármagn á ódýrari kjörum og salan hefur tekið við sér á ný." Þetta er mat greiningar Arion banka á uppgjöri Marel sem birt var í síðustu viku, bæði fyrir fjórða ársfjórðung og síðasta ár í heild. Tekjur félagsins aukast áfram milli ársfjórðunga og námu um 168 milljónum evra á fjórðungnum, af kjarnastarfsemi, sem er um 50% söluaukning milli ára. Tekjur ársins 2010 voru um 582 milljónir evra samanborið við 435 milljónir árið áður af kjarnastarfsemi. Þessi söluaukning sýnir jákvæða þróun hjá félaginu en það sem skiptir einna helst máli er að samhliða þessari aukningu hafa hagræðingaaðgerðir skilað sínu og framlegðin því á pari við langtímamarkmið félagsins. „Stjórnendur félagsins eru bjartsýnir á framhaldið og vísa t.d. í pantanbókina en hún stóð í 162 milljónum evra í lok 4. ársfjórðungs 2010 samanborið við 105 milljónir evra í byrjun síðasta árs," segir í Markaðspunktum greiningarinnar. „Ný fjármögnun félagsins var kláruð í lok seinasta árs að upphæð 350 milljónir evra á 320 punktum yfir LIBOR, félagið er því komið með hagstæðari fjármögnun en áður. Áhrifa vegna lægri fjármagnskostnaðar gætir aðeins lítillega á seinasta ári þar sem fjármögnunin var kláruð síðla árs en mun gæta að fullu á þessu ári og því styðja við arðsemi félagsins." Í lok nóvember á seinasta ári tryggði Marel sér nýja fjármögnun að upphæð 350 milljónum evra, meðal vaxtakjörin eru 320 punktum yfir EURIBOR/LIBOR í upphafi en geta farið lækkandi með bættri skuldastöðu félagsins. „Með þessari nýju fjármögnun er ljóst að fjármagnskostnaður félagsins lækkar umtalsvert. Fjármagnskostnaður samstæðunnar var um 43 milljónir evra á seinasta ári og þar af 28 milljónir vextir af lántöku. Það gera rúmlega 8% af meðalstöðu vaxtaberandi skulda á seinasta ári. Fjármagnskostnaður mun því lækka á þessu ári samanborið við árið áður enda fjármagnið á hagstæðari kjörum," segir í Markaðspunktunum. "Félagið skuldaði áður um 130 milljónir evra í íslenskum krónum samanborið við um 7 milljónir evra í dag. Skuldsetning félagsins hefur einnig minnkað töluvert."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira