Greining Arion spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun 28. janúar 2011 14:17
Greining Arion banka spáir því að hinir virku vextir í dag; þ.e. veðlánavextir (repo) og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum lækki um 50 punkta við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans í byrjun febrúar. „Þá spáum við því að innstæðuvextir (depo) lækki um 25 punkta - en þeir vextir skipta minna máli í dag en áður eins og sést á meðfylgjandi mynd. Veðlánavextir fara því úr 4,5% í 4%, vextir á innstæðubréfum fara úr 4,25% í 3,75% og innstæðuvextir lækka úr 3,5% í 3,25%," segir í Markaðspunktum greiningarinnar. „Fátt hefur breyst frá síðasta stýrivaxtafundi Seðlabankans í desember. Enn eru horfur á lækkandi verðbólgu, lágu fjárfestingarstigi, háu atvinnuleysi og litlum hagvexti á þessu ári. Þá stefnir allt í að Seðlabankinn lækki hagvaxtarspá sína enn á ný vegna óvissu í tengslum við framkvæmd í Helguvík sem þýðir 1% minni hagvöxt á árinu 2012." Þá kemur fram að hagvísar gefa því tilefni til áframhaldi á lækkun stýrivaxta, en nafnvextir eru um þessar mundir í sögulegu lágmarki, hið sama gildir þó ekki um raunvexti. Hinsvegar liggur fyrir að „yfirvofandi" afnám gjaldeyrishaftanna setur Peningastefnunefndinni þrengri skorður, sem endranær, og einhver óvissa ríkir því hversu stórt skref nefndarmenn eru tilbúnir að taka í ljósi þessa á fundinum 2.febrúar nk. Greiningin telur að Seðlabankinn muni áfram þrengja vaxtaganginn, þ.e. þrengja bilið milli hæstu og lægstu vaxta Seðlabankans, til að draga úr sveiflum markaðsvaxta en inni í þessum vaxtagangi liggja millibankavextir. „Við teljum hins vegar að Peningastefnunefnd muni ákveða að draga úr hraða vaxtalækkunar á meðan beðið er eftir að áætlun liggi fyrir um afnám hafta auk þess sem krónan hefur veikst undanfarið," segir í Markaðspunktunum. „Þar sem „stóra planið" um afnám gjaldeyrishaftanna á að liggja fyrir í lok febrúar er ekki ólíklegt að Peningastefnunefndin stígi varlega til jarðar á jafnframt þeirra síðasta fundi fyrir þann tímapunkt. Enda yfirlýst stefna að fara með heldur hærri stýrivexti inn í afnámsferlið heldur en ekki. Þetta eitt og sér eykur líkurnar á því að dregið verði úr hraða vaxtalækkunarferlisins strax á næsta fundi - og gæti niðurstaðan því orðið vonbrigði hjá sumum." Þá segir að frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi hefur krónan veikst um ríflega 4%. Þessi veiking krónunnar gæti haft áhrif á ákvarðanir nefndarmanna, enda stendur skýrt í yfirlýsingu Peningastefnunefndar: „eitthvert svigrúm til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds að því gefnu að gengi krónunnar haldist stöðugt eða styrkist og að verðbólga hjaðni."
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira