Seðlabankinn spáir nú 2,8% hagvexti í ár 2. febrúar 2011 10:13
Seðlabankinn spáir nú 2,8% hagvexti á landinu í ár sem er nokkru meira en bankinn spáði í nóvember s.l. Þetta kemur fram í Peningamálum bankans sem gefin voru út í morgun í tengslum við vaxtaákvörðunina. „Viðskiptakjör hafa batnað heldur meira en spáð var í nóvemberhefti Peningamála og útlit er fyrir kröftugri vöxt útflutnings. Utanríkisviðskipti munu því leggja meira til hagvaxtar en þá var talið. Þrátt fyrir hagstæðari viðskiptakjör og meiri afgang á viðskiptum við útlönd er gert ráð fyrir að gengi krónunnar verði heldur veikara en spáð var í nóvember," segir í Peningamálunum. „Talið er að fjárfesting á þremur fyrstu fjórðungum síðasta árs hafi verið nokkru meiri en bráðabirgðatölur Hagstofu Íslands gefa til kynna. Samdráttur landsframleiðslu á síðasta ári er því talinn hafa verið heldur minni en tölur Hagstofunnar gefa tilefni til að áætla. Í þeirri spá sem nú er birt er gert ráð fyrir að samdrátturinn á síðasta ári hafi verið 2,7%, sem er svipað og spáð var í nóvember. Horfur eru á áframhaldandi bata innlendrar eftirspurnar á þessu ári og að hagvöxtur verði um 2,8% sem er nokkru meiri vöxtur en spáð var í nóvember. Einnig er spáð heldur meiri hagvexti á næstu tveimur árum eða rúmlega 3% hvort árið. Vinnumarkaðskönnun fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs gefur til kynna að þróun á vinnumarkaði sé í samræmi við síðustu spá bankans. Útlit er fyrir að atvinna taki að aukast á ný á fyrri hluta þessa árs og að atvinnuleysi taki smám saman að minnka eftir því sem líður á árið. Þróun verðbólgu hefur einnig verið með svipuðum hætti og Seðlabankinn spáði í nóvember og hafa verðbólguhorfur tiltölulega lítið breyst. Eins og endranær er nokkur óvissa um efnahags- og verðbólguhorfur og efnahagsbatinn brothættur."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira