Kúlulánafélag olíuforstjóra gjaldþrota 4. febrúar 2011 08:00 Framkvæmdastjórar hjá Glitni fengu milljarðalán til kaupa á hlutabréfum í bankanum árið 2008. Fréttablaðið/Valli
Einarsmelur 18, félag Einars Arnar Ólafssonar, forstjóra Skeljungs og fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Glitni, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið var stofnað í maí árið 2008 og hélt utan um rúmlega 800 milljóna króna kúlulán sem Glitnir veitti Einari til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Veðin voru bréfin sjálf. Þau urðu verðlaus með falli bankans í byrjun október sama ár og sitja aðeins skuldir eftir í félaginu. Skiptastjóri fékk félagið á borð sitt í síðustu viku og hefur hann lýst eftir innköllun krafna í búið. Einarsmelur 18 hefur aðeins skilað inn ársreikningi fyrir árið 2008. Þar kemur fram að Glitnir veitti Einari lánið í evrum. Vaxtakjör koma ekki fram í ársreikningnum. Lán fyrrverandi starfsmanna Glitnis sem fengu sambærilega fyrirgreiðslu hjá bankanum báru rúmlega níu prósenta vexti. Lán Einars stóð við lok árs 2008 í 1,2 milljörðum króna. Eiginfjárstaða félagsins er neikvæð um jafn háa upphæð. Lánið var á gjalddaga fyrir tveimur árum. Stjórn Íslandsbanka óskaði eftir því í maí í fyrra að níu stjórnendur Glitnis sem þáðu tilboð þáverandi vinnuveitanda síns um stofnun einkahlutafélaga í þeirra eigu og færðu inn í þau lán til hlutafjárkaupa gæfu þau upp til gjaldþrotaskipta. Heildarlánveitingar til félaganna níu námu 4,2 milljörðum króna. Ekki er útilokað að upphæðin hafi hækkað í samræmi við gengisþróun. Flest eru lán félaganna á gjalddaga á næsta ári. Árni Tómasson, sem sæti á í stjórn Íslandsbanka, segir málið hafa verið sett í hendur lögfræðinga og þeirra að fara með kröfur á hendur félögunum. Hann telur ekki að gengið sé að þeim sem ekki hafi lent í vanskilum. Einar brást við tilmælum stjórnar Íslandsbanka og óskaði eftir því að félag hans yrði tekið til gjaldþrotaskipta um mitt síðasta ár. Hann vildi ekki tjá sig um málið í gær. Eftir því sem næst verður komist hefur aðeins eitt annað félag fyrrverandi stjórnenda Glitnis verið tekið til gjaldþrotaskipta fram til þessa. jonab@frettabladid.is Árni Tómasson
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira