Fór langt fram úr heimildum 14. janúar 2011 06:00 Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, sat beggja vegna borðs þegar Lífeyrissjóður Kópavogs lánaði Kópavogsbæ háar fjárhæðir í hruninu.
Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á meintum brotum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs er lokið. Lífeyrissjóðurinn lánaði bæjaryfirvöldum í Kópavogi 600 milljónir króna í kjölfar bankahrunsins síðla hausts 2008 og námu lánin allt að fimmtungi eiginfjár sjóðsins. Hámark er tíu prósent. Fjármálaeftirlitið, FME, taldi um mitt ár 2009 lánveitingar lífeyrissjóðsins ekki í samræmi við lög, stjórnina ekki hafa sinnt ítrekuðum kröfum um úrbætur og gefið rangar upplýsingar um skuldir bæjarins gagnvart sjóðnum. Í kjölfarið var þeim fjórum bæjarfulltrúum í Kópavogi, sem sæti áttu í stjórn lífeyrissjóðsins, vikið frá. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, var formaður stjórnar lífeyrissjóðsins. FME kærði stjórn lífeyrissjóðsins til efnahagsbrotadeildar í júní 2009. Í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér um svipað leyti segir að í kjölfar bankahrunsins hafi stjórn lífeyrissjóðsins talið það þjóna hagsmunum sjóðsfélaga að ávaxta laust fé um tíma hjá Kópavogsbæ þótt það hafi ekki verið í fullu samræmi við heimildir. Eftir því sem næst verður komist fer málið á borð saksóknara efnahagsbrota sem ákveður næstu skref. - jab
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira