Viðskipti innlent

Telja tækifærin í orku og ferðaþjónustu

Finnur Oddsson.
Finnur Oddsson. Mynd/GVA

Tæp fjörutíu prósent forsvarsmanna í íslensku atvinnulífi telja mestu verðmætasköpun hér næsta áratuginn liggja í nýtingu orkuauðlinda og hækkun raforkuverðs, samkvæmt niðurstöðum könnunar Viðskiptaráðs.

Á eftir fylgir ferðamennska og ferðaþjónusta en þrjátíu prósent þeirra sem þátt tóku í könnuninni telja mestu tækifærin þar. Helmingi færri sjá mestu tækifærin í nýsköpun, fiskveiðum og iðnaði.

„Þótt svörin endurspegli að hluta hefðbundnar áherslur í auðlindanýtingu, þá er greinilegt að tækifæri til verðmætasköpunar á grunni þekkingar eru forsvarsmönnum atvinnulífs hugleikin. Þetta er jákvæð þróun," segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. - jab








Fleiri fréttir

Sjá meira


×