Hvetur banka til að hafa samband við ábyrgðarmenn Helga Arnardóttir skrifar 15. febrúar 2011 12:33 Árni Helgason.
Héraðsdómslögmaður hvetur banka og sparisjóði til að stíga fram og greina ábyrgðarmönnum lána frá því hvort gert hafi verið greiðslumat hjá lántakendum samkvæmt samkomulagi frá 2001 um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga. Rúmlega tíu ára gamalt samkomulag milli stjórnvalda og helstu banka og sparisjóða landsins um verklagsreglur í tengslum við ábyrgðarmenn einstaklinga hefur verið nokkuð til umræðu. Í því er kveðið á um að fjármálafyrirtæki verði að meta greiðslugetu lántakanda, fari lánsupphæð yfir eina milljón króna. Greiðslumatið á að vera undirritað af ábyrgðarmanni lánsins. Hafi það ekki verið gert er hægt að fella ábyrgðina úr gildi. Lánið stendur þó óbreytt. Stjórnvöld gerðu þetta samkomulag fyrst 1998 til að bregðast við miklum fjölda ábyrgðarmanna hér á landi. Fjöldi þeirra var mun meiri en í samanburði við hin norðurlöndin. Í skýrslu nefndar sem viðskiptaráðherra skipaði til að fara yfir framkvæmd ábyrgðarveitinga árið 1996 kom fram að um 90.000 einstaklingar yfir 18 ára aldri voru í ábyrgð fyrir fjárskuldbindingum þriðja aðila. Það voru um 47% allra Íslendinga á þessum aldri. Í áliti nefndar um réttindi og skyldur í viðskiptum neytenda við fjármálafyrirtæki frá 2004 segir að ábyrgðarmönnum í landinu hafi fækkað frá 1996 og séu um 75.000. Ekki nýtur við nýrri upplýsinga um fjölda ábyrgðarmanna. Óljóst er hversu mörg lán gætu heyrt undir samkomulagið en þau gætu hlaupið á þúsundum. Árni Helgason héraðsdómslögmaður vinnur að fjölda mála sem heyra undir samkomulagið. Hann hvetur bankana til að stíga fram og greina fólki frá því hvort gert hafi verið greiðslumat eða ekki.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira