Tekjur jólavertíðar tapast í gjaldþrotinu 19. febrúar 2011 08:15 Lokað! Rétt er að árétta að gjaldþrot Bókabúðar Máls og menningar er alls óviðkomandi bókaútgáfunni sem er undir merkjum Forlagsins.Fréttablaðið/
Bókaútgefendur eru sammála um að gjaldþrot Bókabúðar Máls og menningar (MM) geti haft afar neikvæð áhrif á íslenska bókaútgáfu. Fullyrt er að fjárhagslegt högg útgefenda verði til þess að breyta útgáfu og samskiptum útgefenda og endursöluaðila. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir hljóðið þungt í öllum sem komi að bókaútgáfu hér á landi. Enginn hafi gert sér grein fyrir að svo illa væri komið fyrir fyrirtækinu og skilaboð forsvarsmanna MM til útgefenda og starfsfólks hafi verið önnur. „Greinin samanstendur af mörgum litlum fyrirtækjum sem mega ekki við miklu og þó að gjaldþrot sem þetta virðist smátt í samanburði við margt annað hafa einstök fyrirtæki sennilega tapað umtalsverðum hluta af sinni ársveltu. Það veldur þessum fyrirtækjum alvarlegum búsifjum og vandséð er hvernig menn vinna úr þessu áfalli," segir Kristján. Kristján telur að gjaldþrot MM muni breyta því hvernig verslað sé með bækur. Það fyrirkomulag sem hér hafi tíðkast sé gengið sér til húðar og menn spyrji sig hvernig skipta eigi við endursöluaðila bóka í framtíðinni, enda sé traustið ekkert lengur. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, sem gefur út bækur undir merkjum JPV, Máls og menningar, Vöku-Helgafells og Iðunnar, segir að gjaldþrot Bókabúðar MM sé líklegt til að fækka útgefnum titlum og grafa undan útgáfu metnaðarfyllri ritverka. Hann segir ástæðuna vera að kröfur útgefenda í þrotabúið séu í hámarki svo stuttu eftir jólahátíðina og fáir útgefendur þoli að tapa stórum hluta af jólavertíðinni. „Þetta getur jafnframt haft áhrif á rithöfunda og höfundarlaun þeirra. Þó að útgefandi beri ábyrgð á áhættu í viðskiptum við verslanir segir það sig sjálft að ef þær standa ekki í skilum getur þeim reynst erfitt að standa skil á launum til rithöfunda. Þetta hefur keðjuverkandi áhrif." Sigurður Svavarsson, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar Opnu, tekur í sama streng. „Verslun með bækur er í raun umboðssala og ég lít þannig á að við eigum óseldar bækur í versluninni og hyggst ná í þær – með góðu eða illu. Við eldri gjaldþrot hefur hins vegar slíkur lager verið úrskurðaður eign þrotabúanna – slíkur úrskurður myndi tvöfalda tapið hjá okkur. Svo er það tilfinningalegt atriði að sjá niðurlægingu verslunarinnar sem hefur verið ákveðið viðmið í borginni." svavar@frettabladid.is
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira