Fagna aldarfjórðungsafmæli á Íslenska markaðsdeginum 2. mars 2011 10:00
Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn á föstudaginn, en í ár eru sannkölluð tímamót hjá markaðsfólki og ÍMARK. Félagið fagnar 25 ára afmæli sínu en um leið verður Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, afhentur í 25. skipti. Gunnar B. Sigurgeirsson, formaður ÍMARK, segir í samtali við Markaðinn að dagskráin hafi sjaldan verið glæsilegri enda mikið lagt í viðburðinn. Þrír erlendir fyrirlesarar verða á ráðstefnunni, þar á meðal Scott Bedbury, sem er fyrrum markaðsstjóri Starbucks og Nike og hugmyndasmiður herferðarinnar Just Do It fyrir síðarnefnda fyrirtækið. „Koma Scotts er hvalreki fyrir íslenskt markaðsfólk. Fólk sem kemur að markaðsmálum mun vafalítið sækja sér þekkingu og styrkingu í starfi með því að sækja ráðstefnuna,“ segir Gunnar. Meðal umfjöllunarefna á ráðstefnunni eru hinir svokölluðu nýmiðlar og notkun þeirra í markaðsstarfi. „Markaðsfólk hefur mikinn áhuga á nýmiðlum og vill vita meira um það hvernig á að fóta sig á þeim vettvangi,“ segir Gunnar. „Það gildir það sama um þá og aðrar leiðir til að koma skilaboðum á framfæri til neytenda.“ Gunnar segir að fyrirlesarar á ráðstefnunni muni vafalítið fjalla um þetta og vonandi gefa áheyrendum dæmi um hvernig hægt sé að koma skilaboðum á áhrifaríkan hátt til neytenda með farsímum, samfélagsvefjum og fleiri slíkum miðlum. Gunnar bætir því við að vissulega hafi harðnað á dalnum í auglýsinga- og markaðsgeiranum, en nú sé ljóst að þeir sem héldu sínu striki séu að koma betur undan kreppu en þeir sem drógu úr markaðsstarfsemi. „Vissulega hafa fyrirtæki þurft að laga sig að breyttu ástandi frá því í lok árs 2008 hafa sum fyrirtæki virkilega styrkt sína stöðu með öflugu markaðsstarfi og munu sannarlega njóta ávaxtanna þegar markaðurinn réttir úr kútnum. Öflugt og markvisst markaðsstarf er svo sannarlega mikilvægur partur af verðmætasköpun fyrirtækja.“ Ráðstefnan hefst kl. 9 á Hilton Nordica og stendur til kl. 16. - þj
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira