Yfirvofandi skortur í málmiðnaðinum 14. mars 2011 09:30
Skortur á íslenskum málmiðnaðarmönnum er yfirvofandi hér á landi á næstu árum. Gífurleg afturför hefur orðið í menntun í greininni, að mati Guðmundar Ragnarssonar, formanns Félags vélstjóra og málmtæknimanna. Guðmundur segir atvinnuleysi meðal starfsstéttarinnar hlutfallslega sama og ekkert og ef einhverjar af þeim stóru framkvæmdum sem liggja í kortunum fari af stað á næstunni, verði hér verulegur skortur á málmiðnaðarmönnum. „Það liggur ljóst fyrir að ef farið verður af stað með stækkun á álverinu eða áframhaldandi vinnu við virkjanir, þá verða erlendir vélvirkjar og málmiðnaðarmenn fluttir til landsins til að sinna verkunum,“ segir Guðmundur. „Ef við menntum ekki fleira fólk á næstu fimm til sjö árum, þá förum við að nálgast þann tímapunkt að það verður ekki til mannskapur til að sinna þessum verkum.“ Eftir efnahagshrunið var nokkuð mikið um það að íslenskir málmiðnaðarmenn fluttu til útlanda, flestir til Noregs, þar sem launin voru oft á tíðum meira en helmingi hærri. Guðmundur segir að nauðsynlegt sé að bæta kjör málmiðnaðarmanna hér á landi til þess að halda starfsstéttinni gangandi. Útseld vinna í smiðjunum sé allt of lágt verðlögð. „Kjörin þurfa að batna,“ segir hann. „Í dag þurfa fyrirtæki að skipuleggja viðhaldsverkefni með margra mánaða fyrirvara til þess að tryggja að smiðjur hafi nægan mannskap til að fara í verkin.“ Að mati Guðmundar er nauðsynlegt að koma sterkum boðskap til samfélagsins og stjórnvalda til þess að bæta aðstæður málmiðnaðarmanna hér á landi og laða fólk að greininni. Nokkur fjöldi íslenskra málmiðnaðarmanna býr og starfar í útlöndum í dag, eða 545 manns. Af þeim er ein kona, búsett á Ítalíu. Alls hafa 9.166 manns tekið próf í málmiðngreinum frá því iðnaðarráðuneytið hóf skráningu á prófunum. Þar af eru eftirlifandi 8.280 einstaklingar og um 7.735 búa hérlendis, eða um 90 prósent. Af þeim eru 37 konur, sem gerir 0,4 prósent af heildarfjöldanum. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira