Mamma erfði skyrtuna 23. mars 2011 16:33 Elín Ósk Óskarsdóttir. „
Þetta var yndislegur dagur," segir Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona, sem fermdist 6. apríl 1975 í Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli. „Ég ólst upp á frekar trúuðu heimili. Mamma og pabbi sóttu messur og pabbi söng með kirkjukórnum. Ég fór snemma að syngja með kórnum og hugsaði mikið um trúna. Mér fannst því sjálfsagt að fermast," segir Elín, en séra Stefán Lárusson sá um ferminguna. Elín man vel eftir fermingardressinu. „Við fórum á Selfoss til að velja fötin. Á þessum tíma var mikið í tísku að vera í riffluðu pilsi og vesti. Ég fékk svart rifflað vesti, hnésítt pils og eldrauða blússu með blúndum, ægilega fallega," segir Elín og minnist þess hlæjandi að móðir hennar hafi síðar erft silkiblússuna fínu. „Hún var svo pen og nett og fékk blússuna þegar ég stækkaði upp úr henni."Elín Ósk ásamt foreldrum sínum á fermingardaginn.Móðir Elínar var flinkur kokkur og meistari í að skreyta mat og kökur að sögn Elínar en fermingarveislan var haldin heima. „Allur undirbúningurinn var mjög spennandi. Móðursystur mínar komu frá Reykjavík til að hjálpa mömmu við að útbúa matinn en boðið var upp á bæði steikt læri, hangikjöt og fleira góðgæti. Eftir matinn var boðið upp á kaffi," lýsir Elín. Hún minnist með hlýju alls þess fólks sem kom bæði úr Reykjavík og að austan í ferminguna hennar. Gjafirnar voru heldur ekki af verri endanum. „Ég fékk miklu meira en ég bjóst við," segir Elín sem fékk úr frá foreldrum sínum sem hún á enn í dag og auk þess skatthol. „Það var hvítt eins og var í tísku þá og hægt var að draga út borðið og jafnvel læra við það," segir hún glaðlega.
Fermingar Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira