Century varar við óvissu í Helguvík 5. apríl 2011 06:00 Áætlað hefur verið að á framkvæmdatíma byggingar álvers í Helguvík yrðu til um 3.200 ársverk auk afleiddra starfa. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar að mestu meðan óvissa ríkir um það hvort orka fáist til álversins.Fréttablaðið/GVA
Ragnar Guðmundsson Erfitt eða ógjörlegt gæti orðið að afla orku til álvers Norðuráls í Helguvík fáist ekki orka samkvæmt fyrirliggjandi samningum við HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta kemur fram í ársskýrslu Century Aluminum Co. þar sem fjallað er um áhættuþætti í rekstri. Norðurál Helguvík sem reisir álverið er að fullu í eigu Norðuráls, sem á og rekur álverið á Grundartanga og er aftur að fullu í eigu Century Aluminum. Verði hætt við álverið, eða það tefst verulega, er það sagt munu hafa verulega neikvæð áhrif á fjármögnun, afkomu og lausafjárstöðu Century Aluminum. Áréttað er að félagið hafi engin tök á að stjórna, hafa áhrif á eða spá fyrir um þætti sem tafið gætu eða hindrað framleiðslu og afhendingu orku til álversins. „Þar með er talin geta orkufyrirtækjanna til að fjármagna þróun nýrra jarðvarmavirkjana og tengda uppbyggingu mannvirkja til afhendingar orkunnar.“ Framkvæmdir við byggingu álversins í Helguvík hafa verið stöðvaðar að mestu á meðan ekki hefur verið leyst úr vandamálum við að afla því orku. Í ársskýrslu Century Aluminum er tekið fram að óvissa ríki um hvort eða hvenær framkvæmdum verði haldið áfram, hvort lokið verði við smíði álversins eða hvort rekstur álversins verði arðbær. Í umfjöllun um áhættuþætti í ársskýrslu Century Aluminum eru einnig slegnir margvíslegir aðrir varnaglar varðandi afkomu félagsins. Fjallað er um sveiflur í álverði, óstöðugleika á mörkuðum með hráefni, hækkandi raforkuverð og fleiri þætti. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir framsetninguna í ársreikningnum kunna að vera Íslendingum framandi, en vestra sé sá háttur hafður á að velta upp með þessum hætti margvíslegum áhættuþáttum. „Þetta er eiginlega upptalning á margvíslegum þáttum sem einhvern tímann gætu komið upp við einhverjar aðstæður,“ segir hann. Ragnar segir gerðardómsmál vegna samninga félagsins við HS Orku verða tekið fyrir í maí og niðurstaða eigi að liggja fyrir í sumar. „Og það er svo sem ákvörðunarpunktur í því. En auðvitað vonumst við til þess að menn klári samningaleið áður en til þess kemur og teljum vel tækifæri til þess, hafi menn áhuga á því.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira