"Við tökum ekki nei fyrir svar" 9. apríl 2011 07:00 Undirritun stöðugleikasáttmálans. Vilhjálmur gagnrýnir Jóhönnu hart, en hún segir kröfur SA óbilgjarnar. Gylfi gagnrýnir stjórnvöld fyrir að hafa ekki samráð við vinnandi fólk og efast um sáttaleið SA. Mynd/Steán „
Jóhanna heldur fast við þessa afstöðu sína en hún má vita að við tökum ekki nei fyrir svar,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um afdráttarlausa yfirlýsingu forsætisráðherra í gær um að sáttatillaga samtakanna í sjávarútvegsmálum væri ekki inni í myndinni. SA hafa sett það sem skilyrði í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði að niðurstaða fáist um fyrirkomulag sjávarútvegsmála til framtíðar. Ótækt er að mati SA að skrifa undir nýja kjarasamninga fyrr en vitað sé í hvaða umhverfi sjávarútvegurinn mun starfa. Í þeim anda var sáttatillaga kynnt sem að mati SA var talin líkleg til árangurs. Jóhanna sagði hins vegar að „himinn og haf“ væri á milli hugmynda atvinnurekenda, og vísaði þar til LÍÚ, og stjórnvalda. Vilhjálmur vill litlu svara um það hvort afstaða forsætisráðherra hafi sett gerð kjarasamninga í óleysanlegan hnút en spurður um hvort ekki sé mögulegt að setja sjávarútvegsmálin út fyrir sviga er svarið stutt en skýrt: „Nei.“ Aðilar vinnumarkaðarins hittust í gær og héldu áfram að ræða kjarasamningana. Afstaða Jóhönnu kom til tals en viðræðurnar snerust um fjölmörg atriði. „Við ákváðum að leyfa helginni að líða,“ segir Vilhjálmur sem hefur sagt að verði Icesave-samkomulaginu hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag verði að endurskoða allar forsendur kjarasamninga upp á nýtt, óháð sjávarútvegsmálunum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir það liggja fyrir að sjávarútvegsmálið hafi vegið þungt í yfirstandandi viðræðum. „Við hefðum kosið að þetta væri ekki til að flækja málið. Á sama tíma vilja Samtök atvinnulífsins ekki gera kjarasamning til þriggja ára nema sátt sé í sjávarútvegsmálum. Ríkisstjórnin er staðráðin í að breyta sjávarútvegsmálum án samráðs við nokkurn mann. Þetta er ekki gæfulegt,“ segir Gylfi. Gylfi segir að innan ASÍ sé skýr vilji um það að sjávarútvegsmálin verði þróuð áfram í samstarfi og sátt við starfsmenn í greininni. „Við teljum að ríkisstjórnin eigi að hafa slíkt samstarf og samráð við fólkið sem byggir sína lífsafkomu á sjávarútvegi. Það hefur ekki verið gert. Við munum krefjast þess áfram og því verður komið rétta boðleið,“ segir Gylfi. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira