Verðbólguvæntingar aukast vegna Icesave 9. apríl 2011 10:00 Viðskipti með ríkisskuldabréf síðustu daga þykja endurspegla væntingar fjárfesta vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave.
Hækkandi ávöxtunarkrafa á óverðtryggð skuldabréf ríkisins er meðal annars talin endurspegla væntingar um aukna verðbólgu ef Icesave-samningarnir verða felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Ef svarið á laugardag verður „nei“ eins og síðustu kannanir benda til þá þarf Seðlabankinn að fara að safna forða fyrir eyðimerkurgönguna sem fram undan verður og kaupa gjaldeyri í mun meiri mæli. Það þýðir lægra gengi og meiri verðbólgu,“ segir Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Þegar Seðlabanki Íslands kynnti ákvörðun um stýrivexti í síðasta mánuði sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri það mat bankans að hafnaði þjóðin nýjum Icesave-samningi tefði það fyrir og torveldaði endurkomu ríkissjóðs á erlenda fjármálamarkaði. „Og þar með mun það hafa þau áhrif að áform um afnám gjaldeyrishafta munu ganga hægar fram heldur en ella,“ sagði hann. Seðlabankinn kynni þá að þurfa að grípa til gjaldeyrisforðans til að greiða niður erlend lán ríkisins sem væru á gjalddaga í lok þessa árs og byrjun þess næsta. „Og þá munum við væntanlega þurfa að auka eitthvað gjaldeyriskaupin, sem þýðir eitthvað lægra gengi og aðeins meiri verðbólgu og aðeins minni kaupmátt,“ sagði hann þá. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, segir þess vissulega merki að væntinga um afdrif Icesave gæti á skuldabréfamarkaði. Hún áréttar hins vegar að fleiri hlutir en Icesave-kosningin ein ýti undir væntingar um verðbólgu, svo sem hækkandi olíuverð og aukin umsvif á fasteignamarkaði. Þá segir hún einnig gæta áhrifa vegna væntinga markaðsaðila um hvaða áhrif aukið innstreymi aflandskróna, vegna fyrsta skrefs í afnámi gjaldeyrishafta, muni hafa á eignaverð í landinu og þar með verðbólgu. Friðrik Már bendir hins vegar á að þótt mikilvægir áhrifaþættir kunni að auka væntingar um verðbólgu þá hafi hækkun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfanna orðið síðustu tvo til þrjá daga, en þá tóku kannanir að sýna meirihluta fyrir „nei-i“ í kosningunni um Icesave. „Olíuverðið, fasteignamarkaðurinn og afnám hafta eru allt hlutir sem hafa legið fyrir í lengri eða skemmri tíma og áhrifin hefðu átt að vera komin fram áður,“ segir hann. olikr@frettabladid. is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira