Afstaða Svía ræður miklu um framhaldið 11. apríl 2011 00:01
Afstaða sænsku ríkisstjórnarinnar, og eftir atvikum sænska þingsins, til málefna Íslands ræður miklu um framvindu efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á að áætlunin gangi eftir enda leiðarljós hennar út úr efnahagsþrengingunum. Segir í yfirlýsingu stjórnarinnar frá í gær að hún muni „freista þess að tryggja hnökralausa framvindu áætlunarinnar.“ Í því skyni verður rætt við forystumenn AGS, samstarfsþjóðirnar og hin Norðurlöndin og Pólland, sem hafa lánað Íslendingum peninga. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hófu embættismenn þegar í síðustu viku að setja sig í samband við erlenda starfsbræður til að undirbyggja frekari viðræður í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Næstu daga verður allur þungi starfsmanna utanríkisþjónustunnar á málinu; þeir munu einbeita sér að því að kynna sjónarmið íslenskra stjórnvalda og koma í veg í fyrir að niðurstaðan hafi áhrif á samskipti landsins við önnur ríki, alþjóðastofnanir og fjármálastofnanir. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa sænsk stjórnvöld verið varfærin í að lýsa afstöðu sinni en ríkisstjórnir hinna Norðurlandanna sýnt málinu skilning. Er róið að því öllum árum að fá Svía til fylgilags enda litið svo á að fallist þeir á að tekið sé tillit til breyttra aðstæðna fylgi aðrar þjóðir í kjölfarið. Á sínum tíma stóðu Svíar harðir á því að Íslendingar gengju frá Icesave-samningum áður en lán Norðurlandanna yrðu veitt og efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS hleypt af stokkunum.björn@frettabladid.is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira