Telur að aðgangur að lánsfé geti lokast 12. apríl 2011 08:00 ásdís Óvissa ríkir á meðan beðið er eftir því hvort matsfyrirtæki færi lánshæfismat ríkisins í ruslflokk, segir forstöðumaður greiningardeildar Arion Banka. Fréttablaðið/GVA „
Niðurstaðan er ekki til að eyða óvissunni. En við bjuggumst aldrei við miklum tíðindum á fyrsta degi," segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka. Rólegt var yfir fjármálamarkaði í gær, á fyrsta virka deginum eftir að Icesave-samningarnir voru felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Hvorki urðu stórvægilegar breytingar á skuldabréfamarkaði né hreyfðist skuldatryggingarálag (CDS) ríkisins. Ásdís bendir á að beðið sé eftir viðbrögðum matsfyrirtækjanna Moody's og Standard & Poor's, sem hefðu hótað því að fella lánshæfi ríkissjóðs í ruslflokk yrðu samningarnir felldir. Lánshæfi ríkissjóðs hefur verið í ruslflokki hjá matsfyrirtækinu Fitch frá því að forseti Íslands setti fyrri Icesave-samninginn í hendur þjóðarinnar í janúar í fyrra. Í áliti Fitch í gær kemur fram að niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni nú geti tafið fyrir hærra mati. „Ég held að ef lánshæfiseinkunn ríkissjóðs verði færð í ruslflokk hjá hinum fyrirtækjunum þá muni það hafa neikvæð áhrif. Ríkissjóður mun ekki geta fjármagnað sig á erlendum vettvangi með slæma lánshæfiseinkunn," segir Ásdís og bendir jafnframt á að vafi sé á því hvort Landsvirkjun geti tryggt sér lánsfé vegna framkvæmda við Búðarhálsvirkjun hjá evrópska fjárfestingarbankanum. Í nýlegum lánasamningi fyrirtækisins upp á sjötíu milljónir evra, 11,3 milljarða króna, er skilyrði um að lánshæfið verði óbreytt. Ekki náðist í Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar, þegar eftir því var leitað í gær. - jab
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira