Gagnrýnd fyrir afskiptaleysi 11. maí 2011 00:00 FLóttamenn frá Líbíu Leiðin yfir Miðjarðarhafið hefur kostað marga þeirra lífið.nordicphotos/AFP
Hundruð flóttamanna á ofhlöðnum bátum frá Líbíu hafa farist í Miðjarðarhafinu á síðustu vikum. Ríkin við sunnanvert Miðjarðarhafið, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið sæta nú gagnrýni fyrir að sinna ekki þessu fólki í nauð. „Við fyrstu sýn þarf að líta á hvern einasta bát sem siglir frá Líbíu sem bát sem þarfnast aðstoðar,“ segir Melissa Fleming, talskona Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem hvetur Evrópuríki til þess að sinna betur flóttafólkinu frá Líbíu. Hún segir ekki ganga að bíða eftir neyðarkalli frá flóttafólkinu áður en brugðist sé við. Grípa þurfi inn í strax og athuga hvort hjálpar sé þörf. Flóttamannastofnunin segir að ekkert sé vitað um afdrif að minnsta kosti 800 manna frá því að flóttamannastraumurinn frá Líbíu hófst hinn 25. mars síðastliðinn. Inni í þessari tölu séu þó ekki þeir 600 flóttamenn sem hugsanlega fórust flestir þegar báti þeirra hvolfdi skammt frá Trípolí á föstudag. - gb
Fréttir Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira