Mál og menning skellir í lás 18. febrúar 2011 06:00 Mál og Menning við Laugarveg
Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18 lokaði dyrum sínum í gærkvöldi og opnar ekki aftur. Litlar ef nokkrar líkur eru taldar á því að verslunin verði endurreist í fyrri mynd. Forsvarsmenn fyrirtækisins funduðu með starfsmönnum klukkan tíu í gærkvöldi og greindu þeim frá ákvörðun sinni. Jóhannes Sigurðsson, stjórnarformaður Bókabúðar Máls og menningar ehf., segir það mikil vonbrigði að þurfa að loka versluninni. „En við þurftum að játa okkur sigraða því við ofurefli er að etja. Verslun af þessari tegund, og þrátt fyrir að hún njóti mikillar velvildar fólksins í landinu, getur aldrei keppt við bankana meðan þeir beita afli sínu eins og hér var raunin á." Miklar sviptingar hafa verið í rekstri verslunarinnar undanfarin ár. Fyrirtækið Kaupangur, sem er í eigu Jóhannesar og Bjarka Júlíussonar, keypti húseignina á Laugavegi 18 árið 2007 en þá hafði Penninn, sem eftir gjaldþrot var í eigu Kaupþings banka, nú Arion banka, keypt rekstur bókabúðarinnar. Bankinn og Kaupangur náðu ekki samningum um leigu á húsnæðinu og því samstarfi lauk. Þá opnaði Arion banki bókaverslun í húsnæði fyrrum aðalútibús SPRON á Skólavörðustíg undir merkjum Pennans Eymundssonar, en það húsnæði er einnig í eigu bankans. Samkvæmt fréttum frá þeim tíma sló opnun þeirrar verslunar út af borðinu samning á milli Kaupangurs, Iðu og fleiri, um að taka húsnæðið á leigu um mitt ár 2009. Síðan hafa þeir Jóhannes og Bjarki rekið verslunina en telja rekstrargrundvöll Máls og menningar brostinn vegna nálægðar við bókaverslun sem rekin er af jafn fjársterkum aðila og Arion banka. Jóhannes segir ekkert ákveðið um framtíð Laugavegar 18 en hann neitar því ekki að helst vildi hann sjá bókaverslun í rekstri þar eins og undanfarna áratugi. Hann sér hins vegar ekki fyrir sér að slíkt hugnist nokkrum manni vegna þess viðskiptaumhverfis sem nú er í sölu bóka og ritfanga í landinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er verslun með bækur og ritföng í eigu bankanna að níu tíundu hlutum. - shá
Tengdar fréttir Máli og menningu lokað Eigendur Bókabúðar Máls og menningar að Laugavegi 18 tilkynntu starfsfólki á fundi í kvöld að farið hafi verið fram á gjaldþrotaskipti hjá félaginu sem rekur bókabúðina. Verslunin verður ekki opnuð í fyrramálið. 17. febrúar 2011 23:26 Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira
Máli og menningu lokað Eigendur Bókabúðar Máls og menningar að Laugavegi 18 tilkynntu starfsfólki á fundi í kvöld að farið hafi verið fram á gjaldþrotaskipti hjá félaginu sem rekur bókabúðina. Verslunin verður ekki opnuð í fyrramálið. 17. febrúar 2011 23:26