Rúmlega 80% sætanýting hjá Iceland Express 13. janúar 2011 12:09
Iceland Express ætlar að auka sætaframboð félagsins um rúm 20 prósent á þessu ári miðað við í fyrra enda fjölgaði farþegum félagsins á flesta áfangastaði, sem Iceland Express flýgur til. Til dæmis voru farþegar Iceland Express tæplega áttatíu þúsund í júlí síðastliðnum, sem er 35 prósenta fjölgun frá sama tíma árið áður. Þá jókst markaðshlutdeild Iceland Express á flugleiðinni milli Keflavíkur og London um 38,24 % í júlí. Hlutur félagsins á þessari flugleið hefur aldrei verið stærri í átta ára sögu þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express. Sætanýting Iceland Express á ferðum félagsins á liðnu ári var 80,5 prósent. Þá hefur farmiðasala fyrir nýbyrjað ár farið afar vel af stað, en rúmlega 30 prósent fleiri farmiðar hafa selst í ferðir félagsins í ár, en á sama tíma í fyrra. New York hefur slegið í gegn sem áfangastaður, enda flýgur félagið þangað allan ársins hring og daglega frá júníbyrjun á þessu ári. Í könnunum meðal annars samkvæmt Travelmarket, sem er dönsk leitarvél í fargjöldum og er byggð á upplýsingum frá Dansk Flyprisindex, en þar er fylgst grannt með allri verðlagningu í þessum geira, hefur komið fram, að Iceland Express býður lægsta verðið á flugleiðinni milli Kaupmannahafnar og New York. Getur verðmunurinn numið allt að fjörutíu prósentum. Þá hyggst Iceland Express meðal annars hefja áætlunarflug til Dublin, Belfast, Edinborgar og Stokkhólms næsta sumar. Fyrirhugað er að fljúga þaðan og frá fleiri borgum í Evrópu og á Norðurlöndunum til Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi á leiðinni vestur um haf. Þá verður einnig flogið til Boston og Chicago í sumar, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira